Markaðurinn
Þorskur í sparifötunum, stökkur ostahjúpur og sítrónukeimur
Einstaklega ljúffengur fiskréttur sem tekur enga stund að útbúa. Það er svo gott að nota fjögurra osta blönduna í þennan rétt því bragðmikill osturinn setur svo mikinn svip á réttinn. Í staðinn fyrir ostablönduna má líka rífa sjálfur niður t.d. sterkan Gouda eða Óðals Tind.
Með fisknum er ákaflega gott að bera fram nýbakað rúgbrauð með smjöri og létt salat.
Innihald
4 skammtar
800 g þorskhnakkar, 800-900 g
75 g smjör
1 stk. hvítlauksrif
1 stk. sítróna
2 1⁄2 dl panko brauðraspur
200 g 4 osta blanda (1 poki)
fersk steinselja, handfylli
salt og pipar
Meðlæti
rúgbrauð og ferskt salat
Aðferð:
Skref 1
- Hitið ofn í 200 gráður með blæstri.
- Bræðið smjörið við vægan hita, rífið eða hakkið hvítlauksrifið og bætið út í ásamt berki af einni sítrónu. Leyfið þessu að krauma í 1-2 mínútur og takið af hitanum.
- Bætið raspinum út í ásamt saxaðri steinselju og blandið vel saman.
- Hrærið að lokum ostinum saman við blönduna. Smakkið til með salti og pipar.
Skref 2
- Skerið fiskinn í passlega bita og raðið í eldfast mót. Saltið og piprið vel báðum megin.
- Setjið ostablönduna ofan á hvern bita og þrýstið aðeins niður. Það er allt í lagi þó blandan fari aðeins framhjá og á milli bitanna.
Skref 3
- Bakið þar til fiskurinn er eldaður í gegn og ostahjúpurinn gullinbrúnn. 15-20 mínútur.
- Berið fram með sítrónubátum, rúgbrauði, smjöri og fersku salati.
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir – Gottimatinn.is
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn4 dagar síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Keppni23 klukkustundir síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Markaðurinn1 dagur síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Markaðurinn5 dagar síðanAirfryer rauðspretta á brioche sem svíkur engan
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 klukkustundir síðanMichel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie





