Keppni
Gull og silfur til Íslands á Norðurlandamótinu í matreiðslu – Myndir
Norðurlandamótið í matreiðslu fór fram í dag, þriðjudaginn 24. mars. Þar tóku þátt allar Norðurlandaþjóðir nema Finnland. Keppt var í þremur flokkum: Nordic Chef, Nordic Junior Chef og Nordic Waiter. Ísland átti keppendur í öllum flokkum og stóðu þeir sig allir með miklum sóma. Silvía Louise Einarsdóttir keppti um titilinn Nordic Waiter, en hún var í sigurliði Íslands í norrænu nemakeppninni á síðasta ári. Gabríel Kristinn Bjarnason keppti um titilinn Nordic Chef og Jafet Bergman Viðarson um titilinn Nordic Junior Chef.
Verkefnin voru ekki einföld
Jafet og Gabríel þurftu að elda þriggja rétta matseðil þar sem unnið var með tiltekin skylduhráefni. Forrétturinn byggði á Jerusalem ætiþistlum og spínati, aðalrétturinn á nautaskanka og nautarifjum og eftirrétturinn á Callebaut súkkulaði, engifer og rjómaosti.
Silvía þurfti hins vegar að sýna hæfni á fjölbreyttum sviðum, meðal annars í kokteilagerð, blindu vínsmakki, þekkingu á fyrirskurði og eldsteikingu, auk þess að þjóna gestum til borðs þar sem fram var borinn fjögurra rétta matseðill með viðeigandi vínpörun.
Jafet sigraði
Jafet sigraði í Nordic Junior Chef keppninni. Hann er meðlimur í íslenska kokkalandsliðinu og yfirkokkur á Torfhús Retreat. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Jafet stígur inn í keppniseldhúsið, en hann hefur áður tekið þátt í þessari keppni og tók einnig þátt í Global Junior Europe á síðasta ári.
Gabríel endaði í 2. sæti
Gabríel endaði í öðru sæti en sigurvegari Nordic Chef keppninnar var Andreas Fjallheim frá Noregi. Báðir eru þeir þaulreyndir keppnismenn og sitja í landsliðum sinna heimalanda. Andreas hefur jafnframt náð framúrskarandi árangri á alþjóðlegum vettvangi, en hann vann Global Chef Challenge Junior í Singapúr á síðasta ári. Gabríel hefur tvívegis keppt í Herning; í fyrra skiptið sigraði hann í Nordic Junior, en nú hafnaði hann í öðru sæti í Nordic Chef.
Myndir: Mummi Lú
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni2 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn2 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt3 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt4 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn1 dagur síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul






































