Keppni
Fyrsta keppnisdegi Global Chefs Challenge lokið á Ítalíu
Í dag hófst undankeppni Evrópu fyrir Global Chefs Challenge sem haldin verður í kringum heimsþing matreiðslumanna sem fram fer í Wales 2026. Í þessari keppni eru þrír aðilar sem vinna sér inn rétt á að keppa í Wales, einn frá norður Evrópu, einn frá mið Evrópu og einn frá suður Evrópu.
Bjarki í þriðja sæti
Bjarki Snær Þorsteinsson, Turninn, 19. hæð og María Ósk Steinsdóttir, Lux veitingar riðu á vaðið í morgun og hófu keppni klukkan 07.45. Þau voru fyrst til að byrja af öllum keppendum en svo byrjuðu keppendur á fimm mínútna millibili.
Alls voru 12 keppendur sem tóku þátt í Vegan keppninni en þetta var í annað skiptið sem hún var haldin. Í flokki, norður Evrópu, vann Daninn Bjarke Jeppesen, Valerija Cudova frá Lettland í öðru sætti og Bjarki Snær Þorsteinsson íslandi í þriðja.
Jafet náði í brons
Jafet Bergman Viðarsson, Torfhús Retreat, keppti í Global Junior Chef Challenge en keppnin er fyrir ungkokka að hámarki 25 ára á keppnisdegi.
Jafet hóf leik kl. 12.55 þar sem hann hafði 15 mínútur til að stilla sér upp en eldamennska hófst kl. 13.10 og skilaði hann rétt sínum 1. klukkustund síðar.
Jafet endaði í þriðja sæti, Svíinn Benjamin Hellström lenti í öðru sæti og Trym Karlsen frá Noregi sigraði og verður fulltrúi norður Evrópu í Wales á næsta ári.
Hinrik keppir á morgun mánudag
Keppnin heldur áfram á morgun mánudag og þriðjudag þar sem keppt verður í Global Pastry Chef Challenge og Global Chef Challenge, Hinrik Örn Lárusson, Lux veitingar keppir í Global Chef klukkan 08.10 Mice en Place og fyrstu skil kl. 09:45 og lokaskil klukkan 10:25.
Verðlaunaafhending fyrir Global Chef fer fram á þriðjudag kl. 16.00.
Mynd: aðsend
-
Keppni4 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Keppni24 klukkustundir síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Markaðurinn4 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“








