Uppskriftir
Grískur gufusoðinn þorskur „Plaki“
Þessi réttur er þekktur Grískur fiskréttur og mjög vinsæll. Mjög auðvelt að búa hann til og er hann ekkert verri kaldur eins og hann er oft borðaður í Grikklandi.
Fyrir 6 persónur.
Hráefni:
300 ml ólífuolía
2 stk laukur í þunnum sneiðum
3 stk stórir tómatar saxaðir fínt
3 stk hvítlauksrif í þunnum sneiðum
1 tsk sykur
1 tsk saxað ferskt dill
1 tsk saxað fersk myntulauf
1 tsk söxuð fersk sellerýlauf
1 msk söxuð fersk steinselja
6 þorskstykki 150 gr hvert (Hnakkastykki)
2 msk sítrónusafi
Salt og nýmulinn svartur pipar
Aðferð:
1- Hitið olíuna í víðum potti. Setjið laukinn útí og steikið gulbrúnan. Bætið tómötum saman við ásamt hvítlauk, sykri, dilli, myntu, sellerý, steinselju og 300 ml af vatni. Kryddið til með salti og pipar og látið sjóða rólega, án loks í 25 mínútur, eða þar til vökvinn hefur soðið niður um 1/3.
2- Hellið vökvanum í eldfast form eða skál og setjið saltfiskinn útí og eldið í 180 gráðu heitum ofni í 10-12 mínútur eða þar til fiskurinn er um það bil eldaður. Fjarlægið úr ofninum og bætið sítrónusafa saman við látið standa í nokkrar mínútur áður en hann er framreiddur. Streytið með ferskum, söxuðum jurtum og góðu brauði eða hrísgrjónum.
þennan rétt má framreiða heitann eða kaldann.
Höfundur er Auðunn Sólberg Valsson matreiðslumeistari
-
Keppni3 dagar síðanÍslandsmeistari í kokteilagerð náði 3. sæti á Evrópumótinu á Kýpur
-
Markaðurinn3 dagar síðanViltu starfa sem kokkur hjá Fosshóteli Reykholti?
-
Keppni24 klukkustundir síðanGull og silfur til Íslands á Norðurlandamótinu í matreiðslu – Myndir
-
Markaðurinn2 dagar síðanViltu vinna í hjarta Húsavíkur? Fosshótel leitar að kokki
-
Frétt1 dagur síðanSvangur þjófur braust inn í Almars bakarí í Hveragerði
-
Keppni2 dagar síðanÍsland átti öfluga fulltrúa á fyrstu Green Chef International keppninni
-
Markaðurinn1 dagur síðanPáskatilboð sem þú vilt ekki missa af
-
Markaðurinn1 dagur síðanGarri hlýtur hæstu einkunn í BRCGS gæðavottun







