Keppni
Kokkalandsliðið: eitt gull og eitt silfur skila Íslandi 6. sæti
Heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg lauk núna eftir hádegi í dag með verðlauna afhendingum. Sviss tók fyrsta sætið með 93.01 stig, Svíar í öðru sæti með 90.26 og Norðmenn höfnuðu í því þriðja með 90.13.
Íslenska kokkalandsliðið keppti í tveimur keppnisgreinum og hafnaði í 6 sæti heilt yfir með 88,86.
Landsliðið keppti á laugardaginn í þriggja rétt heitum matseðli en í þeirri grein endaði Ísland í þriðja sæti með gull árangur. Seinni keppnisdagurinn var svo á þriðjudaginn þegar keppt var í þrettán rétta „fine-dining“ máltíð fyrir 12 manns, svokölluðu „Chef’s Table” en þar hafnaði Ísland í 6. sætinu með silfur árangur. Það var samanlagður árangur þessara tveggja greina sem skilaði Íslenska liðinu 6. sætinu heilt yfir í mótinu.
„Við stefndum ofar en ef við skoðum stiga töfluna þá er þetta hníf jafnt þarna efst, enda er þetta heimsmeistarakeppni best að gleyma því ekki.
Við eru þakklát með þennan árangur það hafa allir lagt mjög mikið á sig og þetta er búin að vera löng og ströng vegferð frá því að við byrjuðum að undirbúa okkur fyrir um það bil tveimur árum.”
Sagði Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara í lok dags.
“Þetta hefði ekki verið hægt án framlags ótrúlega margra í kringum þennan flotta hóp og alls ekki án bakhjarlanna okkar og við erum þeim afar þakklát og ef ég fæ að nota tækifærið og þakka Garra, Ásbirni Ólafssyni, Íslandsstofu, Mjólkursamsölunni og öðrum sem hafa lag okkur lið fyrir þeirra öfluga liðsstyrk.”
Næsta verkefni íslenska liðsins eru Ólympíuleikarnir í Stuttgart sem fara fram í febrúar 2024.
Keppnismatreiðsla er í rauninni frádráttarkeppni og er fyrirkomulagið þannig að það byrja allir með 100 stig sem lækkar síðan með tilliti til snyrtimennsku, fagmennsku, útlits rétta og bragðs. Gullframmistaða er yfir 90 stig, silfurframmistaða milli 80 og 90 stig og brons milli 70 og 80 stig. Á mótinu í ár eru um 20 lönd með keppnisrétt.
Kokkalandsliðið flýgur heim til Íslands á morgun föstudag.
Myndir sem fylgja eru frá athöfninni í dag eru teknar af Brynju Kr. Thorlacius
Heildarstig allra landa er hægt að skoða með því að smella hér.
Íslenska kokkalandsliðið skipa:
Þjálfari:
Ari Þór Gunnarsson Fastus
Fyrirliði:
Sindri Guðbrandur Sigurðsson veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
Aron Gísli Helgason, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
Gabríel Kristinn Bjarnason, veitingastaðnum Héðni Kitchen Bar
Ísak Darri Þorsteinsson, veitingastaðnum Tides
Erla Þóra Bergmann, Pálmadóttir veitingastaðnum Fjallkonan
Jakob Zarioh S. Baldvinsson, veitingastaðnum Sumac
Sveinn Steinsson, Eflu verkfræðistofu
Ísak Aron Jóhansson, Lux Veitingum
Chidapha Kruasaeng, Mosfellsbakarí og HR Konfekt
Ívar Kjartansson, veisluþjónustunni Rétturinum
Aþena Þöll Gunnarsdóttir, veitingastaðnum Fiskfélaginu
Hringur Oddsson, veitingastaðnum Tides
Marteinn Rastrick, Lux Veitingum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Nýr Indverskur veitingastaður opnar í Miðbæ Selfoss
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðan
Nýtt veitingasvæði rís í austurenda Smáralindar – 13 nýir veitingastaðir
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan
Sindri Guðbrandur keppir 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Dill opnar á ný eftir breytingar – nú með nýju borðabókunarkerfi Noona
-
Keppni1 dagur síðan
Matreiðslukeppni stjórnmálaflokkana í húsi Fagfélagana
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Ristorante Pizza Margherita komin í vöruúrval Innnes
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Desemberuppbót árið 2024 – Uppbótin er kr. 106.000
-
Markaðurinn7 klukkustundir síðan
Mijita er fyrsti 100% glútenfríi veitingastaðurinn í Wolt appinu