Markaðurinn
Gabríel Kristinn leiðir nýja matarupplifun á Suðurlandi
Í sumar mun nýr veitingastaður opna á lúxushótelinu Seljalandsfoss Horizons og færa metnaðarfulla matarupplifun í sveitinni á Suðurlandið.
Nýr yfirmatreiðslumaður staðarins verður Gabríel Kristinn Bjarnason, Kokkur ársins 2025 og meðlimur í Kokkalandsliði Íslands.
Veitingastaðurinn mun bjóða upp á nýstárlega og skemmtilega fun dining bistro upplifun þar sem áhersla verður lögð á staðbundið hráefni, sköpunargleði og að gefa starfsfólki í eldhúsi tækifæri til að taka þátt í að byggja upp eitthvað nýtt utan borgarinnar.
Veitingastaðurinn verður staðsettur innan Seljalandsfoss Horizons og er stefnt að opnun sumarið 2026. Markmiðið er að skapa nýjan spennandi viðkomustað fyrir matgæðinga á Suðurlandi.
Atvinna í boði
Nú þegar er hafin ráðning á starfsfólki bæði í eldhús og þjónustu. Fyrir fyrirspurnir eða atvinnutækifæri hafðu samband við Gabriel á [email protected]
- Nýr fun dining veitingastaður á Suðurlandi
- Vertu hluti af opnunarteyminu frá fyrsta degi
- Starfaðu með verðlaunakokknum Gabríel Kristni Bjarnasyni
- Taktu þátt í að skapa eitthvað nýtt utan Reykjavíkur
- Nú er verið að ráða kokka, starfsfólk í eldhús og þjóna
Hafðu samband: [email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Bocuse d´Or7 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn7 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt3 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFjölbreyttar keppnir þegar Hótel- og matvælaskólinn fagnar 30 árum
-
Keppni7 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september




