Markaðurinn
Sölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
Ölgerðin leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi í starf sölumanns & Brand Ambassador í hótel- og veitingadeild.
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af sölu og þjónustu og mikinn áhuga á brennivíni, kokteilum og veitingamarkaðnum. Starfið sameinar hefðbundna sölumennsku og viðskiptatengsl við uppbyggingu, kynningu og sýnileika vörumerkja Ölgerðarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Sala og þjónusta við viðskiptavini á hótel- og veitingamarkaði.
Byggja upp og viðhalda sterkum viðskiptasamböndum.
Greina sölutækifæri og afla nýrra viðskiptavina.
Samnings- og tilboðsgerð, pantanir, samskipti og eftirfylgni.
Vera talsmaður og sérfræðingur vörumerkja Ölgerðarinnar.
Byggja upp sýnileika og sölu vörumerkja hjá viðskiptavinum.
Halda vörukynningar, bjóða upp á smakkanir og fræðslu fyrir viðskiptavini og starfsfólk þeirra.
Vinna með viðskiptavinum að þróun kokteila, drykkjarseðla og annarra lausna.
Taka þátt í viðburðum, vörukynningum og öðrum verkefnum tengdum vörumerkjum.
Fylgja eftir söluherferðum og markmiðum þeirra vörumerkja sem viðkomandi ber ábyrgð á.
Vinna náið með sölu- og markaðsteymum Ölgerðarinnar.
Hæfniskröfur:
Reynsla af sölumennsku og/eða störfum á hótel- og veitingamarkaði.
Góð þekking og mikill áhugi á brennivíni og kokteilum.
Reynsla af bar- eða veitingarekstri er mikill kostur.
Rík þjónustulund og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Framúrskarandi samskiptahæfni og góð framkoma.
Hæfni og áhugi á að halda kynningar og miðla þekkingu.
Jákvæðni, frumkvæði, áreiðanleiki og metnaður.
Reynsla af CRM og Excel er kostur.
Góð íslensku- og enskukunnátta.
Bílpróf.
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




