Vertu memm

Kokkalandsliðið

Vel heppnuð Íslandskynning í Berlín

Birting:

þann

Þráinn og þáttastjórnandinn Nora Schmidt

Þráinn og þáttastjórnandinn Nora Schmidt

Kynningin var í samstarfi við þýsku verslunarkeðjuna Frischeparadies í Berlín.  Haldin var 300 manna veisla sem liður í kynningarátaki á íslenskum vörum sem eru á boðstólunum í verslunum þeirra.  Í veislunni var boðið upp á sjö rétta matseðil, þar sem fimm réttir voru úr íslensku hráefni svo sem humar, bleikju, þorski, lambi, en Þráinn Freyr Vigfússon matreiðslumeistari í Blá Lóninu og fyrirliði Kokkalandsliðsins sá um eldunina á lambinu en þýskir matreiðslumenn sáu um að elda hina réttina.

Einnig kom Þráinn fram í sjónvarpsþættinum Berlin Kocht sem er vinsæll matreiðsluþáttur þar í borg og eldaði hann þorsk rétt í þættinum.

Og að sjálfsögðu var Þráinn í verslun keðjunnar að gefa góða ráð og spjalla við viðskiptavini verslunarinnar.

Ekki þarf að efa að svona kynningar skila sér fyrir þjóðarbúið og ekki veitir af.

 

Myndir tók Björgvin Þór Björgvinsson

/Sverrir

Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið