Keppni
Myndir frá forkeppninni Matreiðslumaður ársins 2015
Eins og fram hefur komið, þá liggja úrslit fyrir um hverjir koma til með að keppa um titilinn Matreiðslumaður ársins 2015 sunnudaginn næstkomandi, 1. mars.
Tíu matreiðslumenn tóku þátt í undanúrslitakeppninni sem haldin var á veitingastaðnum Kolabrautinni í dag og voru fjórir hlutskarpastir, þeir Atli Erlendsson (Grillið Hótel Saga), Axel Clausen (Fiskmarkaðurinn), Kristófer Hamilton Lord (Lava Bláa Lónið) og Steinn Óskar Sigurðsson (Vodafone).
Í lokakeppninni munu keppendur standa frammi fyrir krefjandi og skemmtilegu verkefni, en þeim ber að elda forrétt og aðalrétt úr hráefnum upp úr óvissukörfu sem þeir fá kvöldið fyrir keppni. Tveir keppendur munu keppa fyrir hádegi og tveir eftir hádegi, en þeir hafa þrjá og hálfan tíma til að elda réttina sína fyrir sex gesti.
Eins og fyrr segir fer lokakeppnin fram á sunnudaginn í Hörpu og verða úrslit kynnt með verðlaunaafhendingu klukkan 17 sama dag. Gestir og gangandi eru hvattir til að mæta og fylgjast með, en nóg verður um að vera fyrir sælkera í Hörpu þar sem matarmarkaður Búrsins, lokakeppni Food & fun verður í húsinu sömu helgi.
Myndir: Rafn Rafnsson / Klúbbur matreiðslumeistara.
![]()
-
Markaðurinn2 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn1 dagur síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Frétt5 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt5 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt4 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Frétt7 dagar síðanÁttu þessa grillpönnu? Þá skaltu hætta að nota hana strax






















