Keppni
Fjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni

Frá vinstri: Dagný Mist Teitsdóttir Holdø, Agla Árnadóttir, Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, Alexander Brynjarsson og Aron Elvar Bjarkason. Keppendurnir fjórir munu fara fyrir Íslands hönd í Norrænu nemakeppnina á Akureyri í apríl 2027.
Fjórir efnilegir nemendur í matreiðslu og framreiðslu tryggðu sér um helgina þátttökurétt í Norrænu nemakeppninni sem fram fer á Akureyri næsta vor. Úrslitin réðust eftir spennandi og krefjandi forkeppni í Hótel- og matvælaskóla Íslands við Menntaskólann í Kópavogi laugardaginn 17. október, þar sem ungir fagmenn sýndu hvað í þeim býr, að því er fram kemur í tilkynningu frá Klúbbi Matreiðslumeistara.
Tveir keppendur í hvorri grein munu skipa lið Íslands í matreiðslu annars vegar og framreiðslu hins vegar. Liðin taka þátt í aðalkeppni Norrænu nemakeppninnar sem haldin verður í Verkmenntaskólanum á Akureyri dagana 15.–16. apríl 2027. Keppendur þurftu að leysa fjölbreytt verkefni sem reyndu á faglega þekkingu, tæknilega færni, útsjónarsemi og nákvæm vinnubrögð.
Keppnin gaf jafnframt góða innsýn í framtíð íslenskrar matreiðslu og framreiðslu, þar sem metnaður og hæfileikar næstu kynslóðar fagfólks fengu að njóta sín.
Lið Íslands í Norrænu nemakeppninni 2027 skipa Alexander Brynjarsson og Aron Elvar Bjarkason báðir matreiðslunemar á Hótel Geysi. Í framreiðslu munu keppa Dagný Mist Teitsdóttir Holdø, nemi á Kol og Agla Árnadóttir nemi á Grand Hótel Reykjavík.
Fjölbreytt og krefjandi verkefni
Keppnin hófst á skriflegum prófum í báðum faggreinum áður en þátttakendur tókust á við verkleg verkefni þar sem reyndi á þekkingu, nákvæmni og hæfni til að vinna undir álagi. Í matreiðslu þurftu keppendur að útbúa tvo rétti, aðalrétt og eftirrétt.
Aðalrétturinn byggðist á svokallaðri leynikörfu, eða Mystery Basket, þar sem hráefnin voru ekki kynnt fyrr en við upphaf keppninnar en aðalhraéfnið var skötuselur. Keppendur þurftu því að nýta þekkingu sína, útsjónarsemi og sköpunargáfu til að þróa og matreiða rétt úr þeim hráefnum sem þeim voru úthlutuð.
Í eftirréttinum voru þrjú fyrirfram ákveðin hráefni í aðalhlutverki: 64% Valrhona-súkkulaði, pera og mascarpone-ostur frá MS. Þar reyndi á hæfni keppenda til að skapa vel útfærðan eftirrétt þar sem bragð, áferð, útlit og tæknileg vinnubrögð mynduðu eina heild.
Í framreiðslu biðu keppenda fjölbreytt verkefni sem endurspegluðu þær kröfur sem gerðar eru til fagfólks í veitingaþjónustu. Meðal verkefna voru drykkjablöndun, eldsteiking, uppsetning kvöldverðarborðs fyrir fjóra gesti, vínpörun með mat, skapandi servíettubrot og umhelling víns. Verkefnin reyndu á fagþekkingu, nákvæmni, þjónustulund og framkomu keppenda, auk þess sem þeir þurftu að sýna öryggi og sjálfstæði í vinnubrögðum sínum.
Frá einstaklingskeppni yfir í liðakeppni
Þótt forkeppnin hafi verið einstaklingskeppni verður aðalkeppnin á Akureyri liðakeppni í báðum faggreinum. Þar munu tveir matreiðslunemar vinna saman að úrlausn verkefna og tveir framreiðslunemar keppa sem sjálfstætt lið. Fyrirkomulagið verður að mörgu leyti sambærilegt við íslensku forkeppnina, en með aukinni áherslu á samvinnu, verkaskiptingu og samhæfingu innan hvorrar faggreinar.
Fyrir íslensku keppendurna tekur nú við undirbúningstímabil þar sem áhersla verður lögð á að efla bæði einstaklingsbundna færni og samvinnu liðsfélaganna.
Nær 40 ára þátttökusaga Íslands Ísland hefur tekið þátt í Norrænu nemakeppninni allt frá árinu 1987. Keppnin hefur verið mikilvægur vettvangur fyrir unga fagmenn til að öðlast reynslu, efla færni sína og mynda tengsl við jafnaldra á Norðurlöndunum.
Skemmtileg tenging við sögu keppninnar kom fram á laugardaginn, en meðal dómara var Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumeistari. Úlfar var sjálfur þátttakandi í fyrstu Norrænu nemakeppninni sem Ísland tók þátt í árið 1987.
Nú, tæpum fjórum áratugum síðar, var hann mættur hinum megin við dómaraborðið til að leggja mat á frammistöðu nýrrar kynslóðar keppenda. Þessi skemmtilega tenging undirstrikar vel þá löngu hefð sem skapast hefur í kringum keppnina og hvernig reynsla og þekking flyst milli kynslóða innan faggreinanna.
Norræna nemakeppnin á Akureyri í apríl 2027
Aðalkeppni Norrænu nemakeppninnar verður haldin í Verkmenntaskólanum á Akureyri dagana 15.–16. apríl 2027. Þar munu íslensku liðin tvö mæta liðum frá hinum Norðurlöndunum, hvort í sinni faggrein.
Að halda keppnina hér á landi er ánægjulegt tækifæri til að kynna íslenska fagmenntun og þá þekkingu og færni sem býr innan matreiðslu- og framreiðslugreinanna. Jafnframt gefst íslensku keppendunum tækifæri til að keppa á heimavelli, umkringdir stuðningi kennara, meistara, samnemenda og annarra úr faginu.
Mikilvægur vettvangur fyrir næstu kynslóð
Norræna nemakeppnin gegnir mikilvægu hlutverki í að efla metnað og fagmennsku meðal ungra matreiðslu- og framreiðslunema. Hún sýnir jafnframt hversu mikil þekking, þjálfun og undirbúningur liggur að baki góðum árangri í þessum faggreinum. Árangur keppendanna endurspeglar ekki síður mikilvægi þeirra kennara, meistara og vinnustaða sem leggja sitt af mörkum við menntun og þjálfun ungs fagfólks.
Klúbbur matreiðslumeistara óskar keppendunum fjórum innilega til hamingju með árangurinn og óskar íslensku keppendunum góðs gengis í undirbúningnum fyrir Akureyri 2027. Jafnframt eru öllum þátttakendum færðar þakkir fyrir metnað og góða frammistöðu, sem og dómurum, kennurum, skipuleggjendum og öðrum þeim sem lögðu sitt af mörkum til keppninnar.
Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndarinn Mummi Lú.
Myndir: Mummi Lú
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði


















