Vertu memm

Frétt

Skreið frá Íslandi í sviðsljósinu í Tórínó

Birting:

þann

Skreið frá Íslandi í sviðsljósinu í Tórínó - Stockfish Journey - Terra Madre - Slow Food

Dagana 24.–27. september verður farandsýningin Stockfish Journey frumsýnd á alþjóðlegu matvæla- og menningarhátíðinni Terra Madre í Tórínó á Ítalíu. Sýningin er samstarfsverkefni Íslands, Noregs og Svíþjóðar og er henni ætlað að varpa ljósi á sögu, menningu og hefðir sem tengjast hertum fiski.

Frá Ítalíu fer sýningin til Noregs, Svíþjóðar og Íslands, auk þess að stoppa víðsvegar á Ítalíu.

Stefnt að viðurkenningu UNESCO

Að sýningunni standa Slow Food á Íslandi , Slow Food Bergen og Slow Food Mearra-Sámi í Noregi, og Kålrotsakademien í Svíþjóð en hún byggir á samstarfi Slow Food samtaka og samstarfsaðila á Íslandi, í Noregi, Ítalíu og Nígeríu.

Undanfarin ár hafa þessi lönd unnið saman að því að undirbúa umsókn til UNESCO um að hefðir og þekking sem tengjast framleiðslu, verslun og neyslu skreiðar og harðfisks verði viðurkenndar sem hluti af óáþreifanlegum menningararfi mannkyns.

Skreiðin ferðaðist yfir höf og lönd

Á fyrri öldum var skreiðin frá Íslandi og Norður-Noregi ein verðmætasta útflutningsvara landanna. Hún barst yfir haf og lönd út um alla Evrópu og áfram til Afríku og Ameríku.

Herti fiskurinn skyldi eftir sig spor í efnahagslegri og menningarlegri þróun samfélaga beggja vegna Atlantshafsins. Enn er skreið skipað út til fjarlægra landa, þar sem fornar hefðir lifa áfram í matarmenningunni, svo sem til Ítalíu þar sem stoccafisso er mikilvægur hluti matargerðarlistar, og til Nígeríu þar sem skreið er snar þáttur í daglegri matargerð.

Ferðalag skreiðarinnar rakið

Skreið frá Íslandi í sviðsljósinu í Tórínó - Stockfish Journey - Terra Madre - Slow Food

Stockfish Journey er bæði fræðslusýning og listræn innsetning. Gestum gefst kostur á að fylgja ferðalagi skreiðarinnar frá fiskimiðum Norður-Atlantshafsins inn á markaði, heimili og matarborð fólks í ólíkum löndum.

Sýningin sameinar sögur og menningarlega miðlun sem sýna hvernig einföld matvara hefur í gegnum aldirnar byggt upp verslunarsambönd, tengt saman samfélög og skapað sérstaka matarmenningu.

Sýningin verður staðsett á Piazza Carlo Alberto í hjarta Tórínó og þar verður hún opin alla daga Terra Madre frá kl. 10:00 til 20:30.

Formleg opnun sýningarinnar verður fimmtudaginn 24. september kl. 15:00. Þar munu sendiherrar Íslands og Noregs á Ítalíu opna sýninguna og marka upphaf þess ferðalags sem Stockfish Journey er ætlað að fara á komandi árum.

Terra Madre fagnar 40 ára afmæli Slow Food

Terra Madre er stærsta alþjóðlega samkoma Slow Food hreyfingarinnar og er haldin annað hvert ár í Torino, sjá nánar hér. Í ár er hátíðin sérstaklega vegleg þar sem Slow Food samtökin fagna 40 ára afmæli sínu. Af því tilefni munu torg, götur og menningarhús víðs vegar um borgina fyllast af framleiðendum, matreiðslufólki, fræðimönnum og mataráhugafólki frá öllum heimshornum.

Stockfish Journey er áminning um að matur er ekki aðeins næring eða verslunarvara. Hann er sagan okkar, þekkingin sem flyst milli kynslóða og tengslin sem sameina samfélög þvert á landamæri.

Stockfish Journey sýningin er styrkt af Norrænu Ráðherranefndinni, Norska sendiráðinu í Róm, Íslenska sendiráðinu í Róm, Sparebanken Norge og Klofningi ehf.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið