Frétt
Opið bréf beinir sjónum að heilsu og gæðum í mötuneytum
Slow Food á Íslandi, Beint frá býli, Samtök smáframleiðenda matvæla og VOR hafa sent opið bréf til allra framboða í sveitarstjórnarkosningunum 2026.
Í erindinu er óskað eftir skýrum svörum framboða um stefnu þeirra í matartengdum málefnum sveitarfélaga, með sérstakri áherslu á matarinnkaup fyrir skóla og aðra opinbera þjónustu. Þar er meðal annars fjallað um gæði matvæla, skipulag innkaupa, sjálfbærni og stuðning við íslenska og staðbundna framleiðslu.
Samtökin telja málið varða stóran hóp kjósenda og eiga fullt erindi í kosningaumræðuna. Fyrirhugað er að taka svör framboða saman og birta þau opinberlega á miðlum samtakanna.
Bréfið í heild sinni má nálgast hér.
Bréf frá Slow Food á Íslandi, Beint frá býli, Samtökum smáframleiðenda matvæla og VOR – verndun og ræktun, til framboða í sveitarstjórnarkosningum 2026.
Kæru frambjóðendur,
Slow Food á Íslandi, Beint frá býli, Samtök smáframleiðenda matvæla og samtökin VOR – verndun og ræktun senda hér með sameiginlegt erindi til allra framboða í sveitarstjórnarkosningum á Íslandi 2026.
Í ljósi komandi kosninga óskum við eftir upplýsingum um stefnu ykkar í matartengdum málefnum og um innkaupastefnu þess sveitarfélags sem þið bjóðið fram í, sérstaklega hvað varðar matarinnkaup fyrir opinbera þjónustu.
Sveitarfélög á Íslandi eru meðal stærstu kaupenda matvæla á landinu. Þau bera meginábyrgð á matarinnkaupum fyrir leikskóla, grunnskóla, frístundaheimili, félagsþjónustu og aðra þjónustu við íbúa. Því hefur innkaupastefna sveitarfélaga veruleg áhrif – ekki einungis á lífsgæði og heilsu barna og annarra notenda mötuneyta, heldur einnig á:
– stöðu og þróun matvælaframleiðslu, þar á meðal lífræna framleiðslu, smáframleiðslu og matarmenningu
– sjálfbærni, matarsóun og kolefnisspor samfélagsins,
– aðgengi allra að hollum, góðum og hreinum mat,
– styrkingu nærsamfélags og atvinnulífs á svæðinu.
Meðvituð og ábyrg innkaupastefna er eitt öflugasta stjórntæki sveitarfélaga til að stuðla að bættri matarmenningu, heilbrigðari matarvenjum og sjálfbærari rekstri og til að skapa skýrari hvata fyrir matvælaframleiðslu sem byggir á gæðum, gagnsæi og siðferðilegum grunni.
Við viljum því biðja ykkur um að svara eftirfarandi spurningum:
1. Mötuneyti og gæði matar
a) Hvaða markmið hefur framboðið varðandi gæði og heilnæmi matar í mötuneytum sveitarfélagsins?
b) Hvernig hyggst framboðið tryggja að börn, aldraðir og aðrir notendur þjónustunnar fái góðan, hollan og næringarríkan mat?
2. Innkaupakerfi og útboð
a) Hvaða afstöðu hefur framboðið til innkaupakerfa og opinberra útboða á matvælum?
b) Hvernig sjáið þið fyrir ykkur að innkaup þróist svo sem m.t.t. sveigjanleika, gagnsæis, gæða og sjálfbærni?
c) Hvernig viljið þið ná þeim markmiðum?
3. Staðbundin og sjálfbær hráefni
a) Hvernig hyggst framboðið vinna að því að auka notkun á staðbundnu og sjálfbæru hráefni, þar á meðal lífrænt vottuðu, í mötuneytum sveitarfélagsins?
b) Telur framboðið mikilvægt að styðja við nálæg fyrirtæki og framleiðendur með skýrum markmiðum í innkaupastefnu – og hvernig hyggst framboðið tryggja að reglur og framkvæmd innkaupa styðji við þau markmið?
Til að efla upplýsta umræðu munum við birta opinberlega samantekt á svörum framboðanna, og sýna þannig kjósendum stefnu og viðhorf ólíkra framboða til málefna, sem tengjast mat, matarinnkaupum og innkaupastefnu sveitarfélagsins sem þau bjóða fram í.
Við þökkum ykkur kærlega fyrir að gefa ykkur tíma til að svara og hlökkum til samstarfs og samtals um hvernig megi stuðla að bættri matarmenningu og aukinni sjálfbærni innan sveitarfélaga landsins.
Okkur þætti vænt um að fá svör eigi síðar en 20. apríl 2026. Svör sendist á [email protected]
Með vinsemd og virðingu,
F.h. Slow Food á Íslandi
Dóra Svavarsdóttir, formaður
F.h. Beint frá býli & Samtök smáframleiðenda matvæla
Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri
F.h. VOR – verndun og ræktun
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, formaður
Mynd; úr safni
-
Keppni5 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Keppni1 dagur síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Markaðurinn1 dagur síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanLaunakostnaður og samdráttur setja Carl’s Jr. rekstur á hliðina
-
Bocuse d´Or22 klukkustundir síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Markaðurinn1 dagur síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski




