Viðtöl, örfréttir & frumraun
Slow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
Slow Food á Íslandi hefur útnefnt Dominique Plédel Jónsson heiðursfélaga samtakanna. Ákvörðunin var einróma samþykkt á aðalfundi félagsins sem fram fór í maí.
Í tilkynningu frá Slow Food á Íslandi kemur fram að viðurkenningin sé veitt fyrir framúrskarandi framlag Dominique til Slow Food hreyfingarinnar hér á landi. Þar er henni meðal annars þakkað fyrir ómetanlegt starf í þágu íslenskrar matarmenningar og fyrir að hafa verið einn helsti drifkrafturinn að baki uppbyggingu samtakanna á Íslandi.
Fram kemur að Dominique hafi um árabil lagt bæði hug og hjarta í starf félagsins, auk þess að miðla þekkingu og gildum Slow Food hreyfingarinnar um góðan, hreinan og sanngjarnan mat. Þá segir einnig að grunnurinn að starfi samtakanna í dag byggi að stórum hluta á hennar krafti og framtakssemi.
Slow Food á Íslandi segir það mikinn heiður að geta þakkað Dominique fyrir hennar framlag með þessum hætti og óskar henni innilega til hamingju með viðurkenninguna.
Sjá fleiri fréttir um Dominique hér.
Mynd: Slow Food á Íslandi
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni2 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




