Frétt
Carlo Petrini er látinn, 76 ára að aldri
Carlo Petrini, stofnandi alþjóðlegu Slow Food-hreyfingarinnar, er látinn, 76 ára að aldri. Petrini lést í heimabæ sínum Bra á Ítalíu og verður minnst sem eins áhrifamesta talsmanns sjálfbærrar matarmenningar á heimsvísu.
Petrini stofnaði Slow Food árið 1986 sem svar við vaxandi útbreiðslu skyndibita og einsleitni í matarmenningu heimsins. Hreyfingin lagði frá upphafi áherslu á „góðan, hreinan og sanngjarnan mat fyrir alla“ og varð síðar að alþjóðlegu neti sem tengdi saman bændur, matreiðslumenn, matvælaframleiðendur, aðgerðasinna og neytendur víðs vegar um heiminn.
Auk Slow Food átti Petrini stóran þátt í stofnun Terra Madre-ráðstefnunnar og Háskóla matargerðarlistar í Pollenzo á Ítalíu. Verkefnin urðu vettvangur fyrir umræðu um sjálfbærni, verndun matarhefða og mikilvægi staðbundinnar framleiðslu.
Petrini var þekktur fyrir sterka framtíðarsýn og trú á að samfélagsbreytingar yrðu til með samvinnu og þátttöku fólks. Hann sagði gjarnan: „Þeir sem sá útópíu uppskera veruleika“, orð sem margir telja lýsa lífsstarfi hans vel.
Í tilkynningu frá Slow Food-hreyfingunni kemur fram að kraftur hans, staðfesta og ævilöng vinna í þágu annarra muni áfram verða leiðarljós fyrir hreyfinguna og alla þá sem deila sýn hans um betri og réttlátari matarmenningu.
Hægt er að lesa æviágrip Carlo Petrini hér. Hann kom til Íslands árið 2017 til að halda fyrirlestur á vegum Slow Food. Í heimsókn sinni hitti Carlo meðal annars bændur og smáframleiðendur víðs vegar um landið.
Mynd: Slowfood.com
-
Markaðurinn7 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni2 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




