Viðtöl, örfréttir & frumraun
Michelin-kvöld á Moss með Tom Aikens og Marqués de Murrieta
Einstakur viðburður á veitingastaðnum Moss
Þann 11. apríl fær Moss á The Retreat Hotel við Bláa Lónið heimsókn frá góðum gestum. Michelin-kokkurinn Tom Aikens frá Bretlandi og vínframleiðandinn Marqués de Murrieta sækja Moss heim og munu bjóða upp á einstaka kvöldstund í óviðjafnanlegu umhverfi í samstarfi við yfirmatreiðslumeistara Moss, Agga Sverrisson.
Tveir meistarar mætast
Þungamiðja kvöldsins eru sköpunarverk þessara tveggja einstöku matreiðslumeistara, en Tom og Aggi deila sterkri sýn á matargerðarlist þar sem árstíðarbundin hráefni, sjálfbærni og virðing fyrir umhverfinu eru í forgrunni.
Á boðstólnum verða sex réttir sem glæða þessa sýn þeirra lífi ásamt sérvöldum úrvalsvínum frá Marqués de Murrieta.
Agnar Sverrisson
Yfirmatreiðslumeistari Moss lærði hjá hinum heimsþekkta Raymond Blanc og fór síðar fyrir Texture Restaurant & Champagne Bar í London, þar sem hann viðhélt Michelin-stjörnu í áratug. Eftir heimkomu hefur Aggi verið yfirmatreiðslumeistari Moss, þar sem hann töfrar fram ævintýralegt matarferðalag ásamt teymi sínu. Gæði hráefna eru ástríða hjá Agga og hann leggur sig fram um að útvega ferskasta árstíðarbundna hráefni sem hann getur fyrir síbreytilega matseðla sína. Moss hlaut sína fyrstu Michelin-stjörnu árið 2023.
Tom Aikens
Tom Aikens hefur getið sér sérstaklega gott orð sem einn af fremstu og áhrifamestu matreiðslumeisturum Bretlandseyja. Allt frá unga aldri lærði Tom að nýta ferskustu hráefni sem fáanleg voru í nærumhverfinu sem hefur mótað starfsframa hans og sýn á matreiðslu. Greina má skýr frönsk áhrif í nálgun hans, en þegar Tom starfaði á Pied-à-Terre í London varð hann yngsti matreiðslumeistarinn til þess að hljóta tvær Michelin-stjörnur.
Marqués de Murrieta
Marqués de Murrieta var stofnað árið 1852 og er á meðal þeirra fremstu á sviði Rioja-víngerðar. Aðalsmerki þeirra eru stýrð gerjun, tunnutíð og skýr áhersla á vín sem gerð eru til þess að eldast vel.
Vínekran vinnur nær alfarið með ávexti sem ræktaðir eru á eigin landi og hafa þar með fulla stjórn á vínræktinni og samræmi á milli árganga. Þeirra helsta rauðvínsþrúga er Tempranillo sem er burðarás framleiðslunnar ásamt Graciano, Mazuelo og Garnacha. Viura er höfuðþrúgan hvað hvítvínsframleiðslu varðar.
Kvöldstund í hjarta náttúrunnar
Þegar matargerðarlist tveggja Michelin-kokka mætir úrvalsafurð Marqués de Murrieta er næsta víst að kvöldið verður eftirminnilegt. Þetta er viðburður sem enginn matarunnandi má láta framhjá sér fara.
Myndir: aðsendar
-
Keppni2 dagar síðanKosning hafin, hver hlýtur titilinn Kokkur ársins 2026?
-
Keppni3 dagar síðanFimm tryggja sér sæti í úrslitum Kokk ársins eftir harða forkeppni
-
Keppni2 dagar síðanLesendakönnun, hver verður Grænmetiskokkur ársins 2026?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanKokteilagerðin færir kokteilalistina heim til fólks
-
Keppni10 klukkustundir síðanHver hreppir titilinn Kokkur ársins 2026? Bein útsending
-
Keppni2 dagar síðanFimm keppendur takast á um titilinn Grænmetiskokkur ársins 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanElias Johansson tekur við eldhúsinu á Síldarkaffi í sumar
-
Frétt3 dagar síðanNý stjórn SVEIT tekin við eftir vel sóttan aðalfund










