Keppni
Hrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
- Hrafnkell Ingi fagnaði sigrinum innilega.
Stokkhólmur varð miðpunktur norrænnar kokteilmenningar þegar Bartenders’ Choice Awards 2026 fór fram í gær, 16. mars. Yfir 600 gestir sóttu hátíðina.
Íslendingar létu verulega að sér kveða og hlutu verðlaun í fjölda flokka. Amma Don var valinn besti kokteilbar landsins og hlaut einnig verðlaun fyrir besta kokteilseðilinn. Lóla var valinn besti nýi kokteilbarinn og Kaldi Bar fékk viðurkenningu fyrir bestu stemninguna.
Hrafnkell Ingi Gissurarson var valinn besti barþjónninn, Klakavinnslan fékk viðurkenningu fyrir framlag sitt til bargeirans og Skál! var valinn besti veitingastaðurinn. Liv Sunneva Einarsdóttir var valin rísandi stjarna og Tipsy hlaut val almennings.
Árangurinn undirstrikar sterka stöðu Íslands í norrænni kokteilmenningu þar sem sköpunargleði og fagmennska fara saman og áhrifin ná sífellt lengra út fyrir landsteinana.
Hægt er að skoða alla vinningshafa með því að smella hér.
Með fylgja myndir frá verðlaunahátíðinni af keppendum frá Norðurlöndunum.
Myndir: Bartenders’ Choice Awards / Ebba Lange
-
Markaðurinn4 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn4 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Frétt7 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt7 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt6 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Keppni9 klukkustundir síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun18 klukkustundir síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
























