Bocuse d´Or
Myndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir hefur nú skilað Miðjarðarhafsréttinum í keppninni Bocuse d’Or Europe 2026 sem fram fer í Marseille í Frakklandi. Þar leiðir hún íslenska liðið sem kandídat Íslands í einni virtustu matreiðslukeppni Evrópu.
Rétturinn ber heitið Where the Mountain Meets the Sea og er túlkun Snædísar á Miðjarðarhafsþema keppninnar. Þar sameinar hún hráefni úr sjó og landi í framsetningu sem endurspeglar bæði hugmyndafræði liðsins og tengsl Íslands við náttúruna.
Í keppninni þurfa kokkarnir að takast á við tvö verkefni. Annars vegar svokallað „On Stage“ þema þar sem Snædís lagði fram réttinn Warm langoustine aioli with Icelandic wasabi. Hins vegar verkefnið sem borið er fram á stóru keppnisfati þar sem þemað hjá íslenska liðinu ber heitið She Wears the Sea in Silver. Þar er sótt innblástur í íslenska þjóðbúning kvenna og tengsl hans við hafið.
Næst hafði Snædís 45 mínútur til að ljúka stóra keppnisfatinu. Á fatinu þurftu keppendur að útbúa fjórtán skammta þar sem ákveðin hráefni voru í aðalhlutverki. Þar má nefna rauðan gurnard-fisk, litla fjólubláa ætiþistla, kjúklingabaunir og ígulker.
Snædís og teymið hennar hafa undirbúið þátttökuna í marga mánuði og fylgjast margir spenntir með framgöngu íslenska liðsins í keppninni. Veitingageirinn.is heldur áfram að fylgjast með gangi mála í Marseille og flytur lesendum fréttir af því helsta sem gerist hjá íslenska liðinu.
Myndir: Bocusedor.com
-
Markaðurinn5 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn5 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni2 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn1 dagur síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Frétt3 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn











