Markaðurinn
Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar og tengdra félaga
Jón Þorsteinn Oddleifsson hefur verið ráðinn forstjóri Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, Danól, Kjarnavara, Gæðabaksturs og fleiri félaga. Jón Þorsteinn hefur verið framkvæmdastjóri fjármála- og mannauðssviðs Ölgerðarinnar síðustu ár.
Jón Þorsteinn er fæddur árið 1975. Hann er stúdent frá Menntaskólanum að Laugarvatni og hagfræðingur með framhaldspróf í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands. Hann hefur víðtæka reynslu af fjármálamarkaði, sinnti viðskiptaþróun hjá Landsbréfum, var fjármálastjóri nýja Landsbankans og þar áður var hann forstöðumaður fjárstýringar Landsbankans. Hann hefur einnig sinnt fjármálaráðgjöf til fyrirtækja og stofnana sem sjálfstæður ráðgjafi.
„Það er gríðarlega spennandi tækifæri að taka við þessu starfi hjá þessu öfluga fyrirtæki. Síðustu ár hef ég í starfi mínu hjá Ölgerðinni komið æ meir að daglegum rekstri fyrirtækisins og samstæðunnar og ég þekki því vel innviði, starfsemi og menningu þessara fyrirtækja.
Framundan eru fjölmörg spennandi tækifæri og ég veit að Bera mun veita dótturfélögunum svigrúm til vaxtar og þróunar á öllum sviðum,“
segir Jón Þorsteinn.
Bera er, eins og áður sagði, móðurfélag samstæðunnar og undir hatti þess verða m.a. mannauðssvið, stafræn þróun og rekstur tölvukerfa, rekstur vöruhúsa, innkaup á aðföngum og þjónustu, þjónusta á fjármálasviði og svo mætti áfram telja. Stærðarhagkvæmni samstæðunnar verður því nýtt enn betur.
Bera var nafn móður Egils Skallagrímssonar og jafnframt dóttur hans. Nafnið hefur því sögulega og skýra tengingu við Ölgerðina Egil Skallagrímsson.
-
Markaðurinn2 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn2 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Frétt5 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt5 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt4 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Frétt2 dagar síðanÁttu þessa Voga ídýfu? Ekki neyta hennar ef þú ert með hveitiofnæmi



