Vín, drykkir og keppni
Heilum gámi af kampavíni stolið á leið til Íslands
Ölgerðin varð nýverið fyrir óvenjulegu áfalli þegar heill gámur af kampavíni sem var á leið til Íslands hvarf við flutningahöfnina í Rotterdam. Greint var frá málinu á mbl.is.
Í sendingunni voru meðal annars kampavín frá Moët & Chandon, Veuve Clicquot og Dom Pérignon auk rósavínsins Whispering Angel. Samkvæmt upplýsingum sem Ölgerðinni bárust var gámnum stolið áður en hann komst um borð í skip á leið til Íslands.
„Við héldum að sendingin væri komin af stað til Íslands en svo kom bara í ljós að það var enginn gámur til að sækja. Flutningsaðilinn greip bókstaflega í tómt þarna úti. Það var búið að ræna allri sendingunni,“
segir Egill Sigurðsson, vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni, í samtali við mbl.is.
Þrátt fyrir tjónið brást framleiðandinn Moët Hennessy hratt við og útbjó nýja sendingu sem kom til landsins í tæka tíð fyrir verslunarmannahelgina. Því ættu viðskiptavinir ekki að verða fyrir langvarandi skorti á kampavíni.
Hægt er að lesa nánar um málið á mbl.is.
Mynd: Pixabay. Tengist fréttinni ekki beint.
-
Markaðurinn5 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn6 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni4 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði




