Vín, drykkir og keppni
Bjarni Þór Logason nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags
Bjarni kemur til RVK Bruggfélags frá Heimkaupum þar sem hann var innkaupastjóri og kom m.a. að opnun verslunarinnar Prís. Áður starfaði hann sem rekstrarstjóri hjá Ölgerðinni, RJC og Líflandi og hefur yfir 20 ára reynslu af matvælamarkaði.
Bjarni hefur lokið BS-prófi í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og rekstur auk þess að hafa lagt stund á nám í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Ráðning Bjarna markar tímamót í starfsemi félagsins, sem nú stefnir á mikla sókn. Til marks um þessa sókn bætti RVK Bruggfélag nýverið fjórum nýjum kjarnabjórum við vöruúrvalið. Hönnun og gæði vörunnar hafa vakið verðskuldaða athygli innanlands sem utan og hlutu dósirnar, sem voru hannaðar af Karlsson Wilker í New York t.a.m gullverðlaun FÍT fyrir hönnun.
Bjarni Þór Logason:
„Ég hef lengi verið aðdáandi bjóranna frá RVK Bruggfélagi og þekki því vel til félagsins, sem hefur verið þekkt fyrir að vera framsækið í vöruþróun. Þá er Tónabíó einstakur staður, þar sem gæði, stemning og metnaður mætast á einstakan hátt.
Það eru mörg spennandi verkefni framundan sem ég hlakka til að byrja á. Við erum stórhuga hér innanhúss, þannig að bjórunnendur eiga von á góðu á komandi misserum.“
Einar Örn Sigurdórsson stjórnarformaður RVK Bruggfélags:
„Verslun með bjór stendur á tímamótum, þar sem tilkoma netverslana og bein sala frá framleiðendum hefur skapað nýja sölumöguleika auk þess sem kröfur um aukið frelsi og afnám einkasölu hins opinbera verða stöðugt háværari.
Bjarni kemur til okkar með víðtæka þekkingu og reynslu af úr íslensku viðskiptalífi sem mun sannlega styrkja okkur í þessari þróun.“
RVK Bruggfélag var stofnað á bjórdaginn 2017 og hefur síðan þá gert yfir 200 tegundir bjóra, allt frá strangheiðarlegum ljósum lager yfir í 10% kanilsnúða stout. RVK Bruggfélag starfrækir í dag tvö brugghús í Skipholti með allri nýjustu tækni og gæðastýringu sem þarf til að tryggja að framleiðslan sé alltaf fyrsta flokks.
Árið 2024 voru svo tímamót í sögu RVK Bruggfélags með opnun Tónabíós en þar er nú rekinn staður með 22 krönum og er því sannkallaður draumaáfangastaður bjórunnenda.
Mynd: aðsend
-
Frétt4 dagar síðanReyndir fagmenn skipa nýja stjórn Klúbbs Framreiðslumeistara
-
Markaðurinn5 dagar síðanGlæsileg sýning í Höllinni
-
Food & fun4 dagar síðanÞessir gestakokkar heimsækja Ísland í tilefni Food & Fun
-
Food & fun2 dagar síðanFood & Fun 2026: Allar bókanir fara fram á Dineout í ár
-
Uppskriftir6 dagar síðanFullkominn smáréttur: Gratíneraður Búri með timían og hunangi sem bráðnar í munni
-
Markaðurinn3 dagar síðanHágæða þurrkaðir ávextir frá Secret Garden koma á íslenskan markað
-
Nemendur & nemakeppni1 dagur síðanMyndir: Bakaradeildin í Hótel- og matvælaskólanum tók þátt í Tyllidögum
-
Frétt21 klukkustund síðanGrunur um salmonellu í kjúklingalærum frá Stjörnugrís





