Markaðurinn
Lúxusbrauðterta fyrir ostunnendur – dásamlega einföld
Hér sameinast eitthvað það besta og vinsælasta á veisluborðum, brauðtertan og ostasalatið og útkoman er stórkostleg. Það er um að gera að nota þá osta sem ykkur þykja bestir, en í þessari uppskrift fær camembert að njóta sín ásamt kryddostum.
Það er líka gaman að bera þessa tertu fram fyrir grænmetisætur þar sem hún inniheldur ekkert kjöt eða fisk eins og algengt er með brauðtertur.
Fyrir 10
2 rúllutertubrauð eða 1 hefðbundið brauðtertubrauð
2 Dala camembert
1 Kryddostur með hvítlauk
1 Kryddostur með svörtum pipar
1 stk. græn paprika
1 stk. stór rauðlaukur
20-30 stk. Rauð eða græn vínber
Góð handfylli fersk steinselja
3 dósir 18% sýrður rjómi frá Gott í matinn
2 dl majónes
Spírur, graslaukur, rauðlaukur, tómatar, steinselja til skrauts
Aðferð:
- Látið brauðtertubrauðið þiðna við stofuhita á meðan þið gerið salatið.
- Skerið ostana, grænmetið og vínberið í mjög smáa bita, saxið steinseljuna.
- Blandið þessu öllu saman við 2 dósir sýrðan rjóma og 1 dl majónes (geymið eina dós sýrðan rjóma og 1 dl majónes til að smyrja utan á tertuna)
- Ef þið viljið gera hringlaga brauðtertu eru skornir fjórir jafnir hringir úr rúllutertubrauðinu. Ég nota botn á tertuformi til viðmiðunar.
- Leggið brauðið á disk og smyrjið ostasalatinu jafnt á þannig að þið fáið þrjár hæðir af salatinu.
- Leggið að lokum brauð efst. Hrærið saman 1 dl af majónesi við eina dós af sýrðum rjóma og smyrjið vel yfir tertuna og niður allar hliðar.
- Tertan geymist vel í ísskáp í sólarhring. Skreytið tertuna að vild og berið fram.
Skoða nánar á www.gottimatinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Frétt5 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Markaðurinn4 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Markaðurinn4 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun8 klukkustundir síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu




