Markaðurinn
Netflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
15. – 17. maí tekur veitingastaðurinn Lava við Bláa Lónið á móti sannkölluðum listamanni á sviði eftirréttargerðar. Sköpunarverk matreiðslumeistarans Juan Gutierrez, sem bar sigur úr býtum í Netflix-þáttaröðinni School of Chocolate, verða á matseðli á Lava og í boði á Blue Café þessa einu helgi í maí.
Juan Gutierrez
Kólumbíski matreiðslumeistarinn Juan Gutierrez bar sigur úr býtum í þáttunum School of Chocolate á Netflix. Hann er þekktur fyrir fínlega og fallega eftirrétti þar sem hann gerir óvenjulegum hráefnum skemmtileg skil. Einlægur áhugi hans á nýsköpun á sviði eftirrétta sem og listinni að segja frá sköpunarverkunum hafa átt sinn þátt í því að efla orðspor og gæði eftirréttargerðar á heimsvísu.
Þriggja rétta máltíð
Gestir á pop-up viðburðinum fá þriggja rétta samsettan seðil að hætti Lava þar sem glas af kampavíni fylgir með. Í eftirrétt verður The Black Sesame, sem er einkennisréttur Juan og var valinn á meðal 10 bestu eftirrétta í Chicago tvö ár í röð.
Benedikt Fannar Gylfason yfirmatreiðslumeistari Lava, hlakkar mjög til viðburðarins.
„Það er gríðarlega spennandi að fá heimsókn frá Juan og hans sýn á eftirréttagerð passar mjög vel við það sem við stöndum fyrir á Lava.
Það spillir heldur ekki fyrir að Juan mun gefa okkur sérstakan eftirrétt sem mun fá pláss á aðalmatseðlinum okkkar í allt sumar,“
segir Benedikt.
Matarupplifun á heimsmælikvarða
Lava er veitingastaðurinn við Bláa Lónið og er byggður inn í 800 ára gamla hraunklöpp. Staðurinn stendur við bakka lónsins og hægt er að horfa yfir fagurblátt vatnið, sem er einstakt á heimsvísu.
„Það er sérstaklega vinsælt að bóka bæði í lónið og á Lava og við mælum að sjálfsögðu með því,“
segir Benni með bros á vör.

The Black Sesame, einkennisréttur Juan Gutierrez, sem hefur verið valinn á meðal tíu bestu eftirrétta í Chicago tvö ár í röð.
Juan mun einnig halda námskeið fyrir starfsfólk Lava við þetta tilefni og því ekki ólíklegt að nýungar bætist við matseðla staðarins í kjölfarið, en Lava leggur metnað sinn í að nýta ferskt gæðahráefni úr nærumhverfinu og kynna íslenska matarmenningu fyrir fjölmörgum gestum Bláa Lónsins.
Lava opnar klukkan 11:30 og opið er til klukkan 21:00.
Borðabókanir á blaalonid.is eða á dineout.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni2 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn2 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt3 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt4 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn2 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul




