Smári Valtýr Sæbjörnsson
Klúbbur matreiðslumeistara reiðir fram þjóðarréttinn um land allt á morgun
Rauði krossinn á Íslandi stendur fyrir landsæfingu á morgun sunnudaginn 19. október, milli klukkan 11-15, og býður þjóðinni jafnframt í mat. Alls verða 48 fjöldahjálparstöðvar opnaðar um allt land þar sem sjálfboðaliðar Rauða krossins standa vaktina, rétt eins og um alvöru neyðarástand væri að ræða.
Klúbbur matreiðslumeistara leggur Rauða krossinum lið á landsæfingunni með því að reiða fram þjóðarréttinn, íslenska kjötsúpu.
Á síðustu vikum höfum við sem búum á þessari eyju í Norður-Atlantshafi verið rækilega minnt á kraft óútreiknanlegra náttúruafla, að því er fram kemur á heimasíðu Rauða Krossins. Hættan er ætíð til staðar fyrir alla sem hér eru staddir, þar sem neyð gæti orðið raunin á örskammri stundu. Skapist alvöru neyð er mikilvægt fyrir alla landsmenn, og gesti okkar einnig, að vita hvert á að sækja hjálp og hvar er hægt að komast í öruggt skjól.
Rauði krossinn á Íslandi vonast til að sjá sem flesta á landsæfingunni. Það er hagur okkar allra.
Hér má sjá lista yfir þær fjöldahjálparstöðvar sem verða opnaðar á morgun sunnudag:

Myndir: raudikrossinn.is
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 klukkustundir síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn3 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn2 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt6 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Keppni3 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Keppni2 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september




