Keppni
Ert þú hraðasti barþjónninn á Íslandi? Skráðu þig í þessa keppni
Eins og síðustu ár þá verður keppnin um hraðasta barþjóninn haldin í samstarfi við Mekka Wines & Spirits. Keppnin verður haldin á Sæta Svíninu, þriðjudaginn 21. nóvember kl. 18:00.
Keppendur þurfa að gera 3 tegundir af drykkjum á sem skemmstum tíma. Öll tæki, tól og hráefni verða á staðnum og þurfa því keppendur ekki að koma með neitt með sér.
Dómarar verða Richard Cookson, hraðasti barþjónninn árið 2022 og Elna María Tómasdóttir, varaforseti BCI.
Skráning í keppnina fer fram með því að senda tölvupóst með nafni og vinnustað á [email protected]
ATH! Takmarkað pláss er fyrir keppendur, þannig að við hvetjum áhugasama að skrá sig sem fyrst! Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Í boði verða frábær verðlaun í fljótandi og fljúgandi formi!
Eftir keppni verður svo kveikt á Karaoke vélinni og verður sungið og dansað fram á nótt.
Allir barþjónar geta mætt og skráð sig í klúbbinn, ásamt því að taka þátt í kvöldinu.
Dagskrá kvöldsins:
18:00 – Húsið opnar, léttar veitingar og ,,mingle”
19:00 – Aðalfundur hefst (Nánar hér)
20:30 – Keppnin um hraðasta barþjóninn
22:30 – Karaoke partý
Eins og áður segir þá fer herlegheitin fram á Sæta Svíninu, þriðjudaginn 21. nóvember kl. 18:00.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNýr rekstraraðili tekur við Pakkhúsinu í Ólafsvík
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn4 dagar síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Markaðurinn5 dagar síðanAirfryer rauðspretta á brioche sem svíkur engan
-
Keppni15 klukkustundir síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Markaðurinn19 klukkustundir síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina




