Keppni
Úrslitin nálgast á Reykjavík Cocktail Week eftir litríkar forkeppnir
Á miðvikudaginn á Reykjavík Cocktail Week Expo fremstu barþjónum landsins um sigur í keppnum sem fara fram samhliða Reykjavík Cocktail Week. Meðal þess sem vakti athygli var að kokteilum var meðal annars framreitt í kókómjólkurfernum, kransakökum og paprikum, og sýndi það vel hversu langt keppendur voru tilbúnir að ganga til að brjóta upp hefðbundnar hugmyndir.
Reykjavík Cocktail Week hófst mánudaginn 13. apríl og stendur yfir fram á sunnudagskvöld. Hátíðin er skipulögð af Barþjónaklúbbi Íslands í samstarfi við helstu vínbirgja, veitingahús og bari á höfuðborgarsvæðinu og hefur á undanförnum árum vaxið ört. Í ár spannar hún í heila viku.
Opnunarhóf hátíðarinnar fór fram á SKÝ Bar á mánudagskvöld þar sem meðal gesta voru Bruno Santos, forseti Alþjóðlegra barþjónasamtaka (IBA), og Xino Wu, ritari samtakanna. Teitur Riddermann Schiöth, forseti Barþjónaklúbbs Íslands, setti hátíðina formlega.
Yfir fjörutíu staðir taka þátt í hátíðinni og hafa þeir þróað sérstaka Reykjavík Cocktail Week kokteilaseðla. Þá er einnig boðið upp á fjölbreytta viðburði sem eru opnir almenningi um alla borg.
Keppnir og úrslit
Samhliða hátíðinni fara fram bæði Íslandsmeistarakeppni barþjóna og þemakeppni. Forkeppnir fóru fram í Kolaportinu miðvikudaginn 15. apríl, þar sem rúmlega þrjátíu barþjónar tóku þátt.
Ellefu keppendur berjast um Íslandsmeistaratitilinn, þar sem sigurvegari ræðst af samanlögðum stigum í fimm keppnisliðum: hraðakeppni, kunnáttuprófi, lyktarprófi, bragðprófi og klassískri framreiðslu á kokteilum.
Þemakeppnin var einfaldari í sniðum en ekki síður skapandi. Þemað í ár var „Ekkert mál!“, þar sem keppendur þurftu að bera fram drykki í óhefðbundnum ílátum. Þar sáust meðal annars kokteilar bornir fram í kransakökum, vatnsbyssum og blómapottum.
Meðal dómara voru Adam Helgason og áhrifavaldurinn Guðný Ljósbrá.
„Það var virkilega skemmtilegt að sjá hversu skapandi keppendur voru og hversu langt þeir fóru út fyrir kassann,“
sagði Adam í samtali við Vísi.
Úrslit á sunnudag
Þrír keppendur komust áfram í úrslit þemakeppninnar á sunnudaginn 19. apríl í Gamla Bíó:
- Svanhvít Thea Árnadóttir (Veður) – Marsípaník
- Heimir Morthens (Drykk) – Núðlan
- Georg Sillat (Tipsý) – Double Kick
Fimm keppendur komust áfram í úrslit Íslandsmeistarakeppninnar og munu keppa í hraðakeppni á sama kvöldi:
- Grétar Matthíasson (Blik Bistro) – Yuzu Bean
- Leó Snæfeld (Jungle) – Þriðja Kryddið
- Björg Elva Friðfinnsdóttir (Geira Smart) – Firefly
- Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson (OTO) – Atomic Joe
- Elvar Sigurðsson (Nína) – Midnight Banana
Sigurvegari Íslandsmeistarakeppninnar mun fara fyrir hönd Íslands á heimsmeistaramóti barþjóna sem haldið verður í Macau í Kína í október.
- Djúsí Sushi með Icy Spicy
- Veður með Strawberry Cream Gimlet
- 2Guys með Robert Clive
- Jungle með Mango Unchained
- Tres Locos með Apex
- Apotek með Pearl Necklace
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Frétt3 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Frétt5 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Markaðurinn2 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHandverksbjór og matarveisla á Hólum



