Viðtöl, örfréttir & frumraun
Fyrsti gestakokkurinn á OTO – Sebastian Gibrand
OTO tekur á móti Sebastian Gibrand sem gestakokki þann 13. og 14. október næstkomandi og er þetta í fyrsta sinn sem gestakokkur heimsækir staðinn frá því að OTO opnaði í vor sl.
Sebastian Gibrand er nafnkunnur í Svíþjóð fyrir keppnisbakgrunn sinn sem fyrrum fyrirliði sænska landsliðsins í matreiðslu, fyrir sigurinn í sænska sjónvarpsþættinum „Kockarnas kamp“ og fyrir silfurverðlaun sín í Bocuse d’Or 2019, virtustu matreiðslukeppni heims.
Í dag rekur hann eigið veitinga- og viðburðafyrirtæki ásamt kollega sínum Robert Sjöberg, hann hefur bakgrunn frá fyrsta „KRAV“ vottaða Michelin stjörnuveitingastað Svíþjóðar.
Athugið að fyrir þessi kvöld er tekið við kreditkortanúmer til tryggingar um að fólk noti bókunina sína, ekki er rukkað ef fólk afbókar eða færir bókunina sína utan 24 tíma þar til bókunin á sér stað. Gjald fyrir hvert sæti ef fólk mætir ekki er 5.000 kr.
Matseðill *
Til að byrja með:
Pâte à choux & feykir
Soðbrauð, sýrður rjómi & kavíar
Hörpuskel að vestan “rockefeller”
Réttir
Agúrka, lúða & wasabi
Bleikja, gulrót & “sænskt karrý”
Þorskur, hvítt miso & sveppate
Grillað lamb, ilmandi jurtir & ras el hanout
Aðalbláber, blóðberg & birki
“Fika”
Verð 14.900 kr.
Vínpörun 12.900 kr.
*Fyrir þennan ákveðna viðburð er því miður ekki hægt að komast á móts við ofnæmi/óþol/grænmetis/vegan.
-
Keppni5 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir er Vínþjónn ársins 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðanSkyrunnendur fá tvær nýjar ástæður til að gleðjast
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun14 klukkustundir síðanSiggi Hall, Guðmundur og Þormóður á Kipinä
-
Frétt6 dagar síðanAlþingi samþykkir róttækar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins
-
Markaðurinn4 dagar síðanSérsniðið íslenskunám fyrir Wolt-sendla: Samstarf sem eflir inngildingu
-
Markaðurinn4 dagar síðanDineout kynnir nýja klippikortalausn fyrir veitingastaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanNýtt vörumeri hjá Nathan: Musgraves Excellence
-
Markaðurinn3 dagar síðanDanól kynnir brauð mánaðarins fyrir júlí 2026



