Nemendur & nemakeppni
Mörg spennandi tækifæri eru framundan fyrir ungkokkana
Stjórn Km með Viðburðar og Nýliðunarnefnd í forsvari hefur ákveðið að blása til sóknar í ungliðastarfi Klúbbsins.
Langar okkur að reyna að smala saman ungkokkum þ.e.a.s. nemum og ungkokkum undir 25 ára. Til að byrja með höfum við ákveðið að bjóða áhugasömum ungkokkum til hittings. Þar sem við munum fara yfir næstu skref í starfi Ungkokka íslands. Fulltrúar viðburðar og nýliðunarnefndar verða staddir á Hilton Reykjavík Nordica lobby barnum milli 17:00 og 18:00 miðvikudaginn 29. janúar og fimmtudaginn 30. janúar. Þar munu sitja fulltrúar KM í kokkaklæðnaði og taka á móti ykkur. Mörg spennandi tækifæri eru framundan fyrir þá sem áhuga hafa á að starfa með í Ungkokkum Íslands.
Tækifærin eru meðal annars:
- Þátttaka á ungliðafundi í Herning Danmörku 17.-19. mars.
(2 fulltrúar fara á vegum Klúbbs matreiðslumeistara) - Þátttaka á aðalfundi Kúbbs matreiðslumeistar 29. mars.
- Þátttaka á Heimsþingi WACS í Stavanger 2.-5. júlí.
(2 fulltrúar fara á vegum Klúbbs matreiðslumeistara)
Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta geta haft samband:
[email protected]
GSM 861-5939
Árni Þór Arnórsson
[email protected]
Gsm 899-6565
Jóhann Sveinsson
[email protected]
Gsm 690-2402
![]()
-
Frétt18 klukkustundir síðanEinkakokkar meðal eftirsóttustu matreiðslumanna heims
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanSex nýir komust í hóp þeirra 299 sem bera virtasta titil vínþjóna í heiminum
-
Frétt7 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt5 dagar síðanEndurbyggðu veitingastaðinn frá grunni eftir brunann
-
Frétt6 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð
-
Frétt2 dagar síðanÍslenskir veitingastaðir sagðir of tregir til að hækka verð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanRoyal Palm South Beach opnar á ný eftir 12,5 milljarða króna endurbætur
-
Frétt1 dagur síðanPálmasykur frá Royal Orient innkallaður


