Keppni
Íslenska Kokkalandsliðið vann til gullverðlauna í gær
Heimsmeistaramótið í matreiðslu stendur nú yfir í Lúxemborg og Íslenska kokkalandsliðið keppti í fyrri keppnisgreininni sinni af tveimur í gær. Greinin heitir „Restaurant of nations” þar sem eldaður er þriggja rétta matseðill fyrir 110 gesti.
Dómefnd mótsins birti niðurstöðurnar fyrir daginn í gær i morgun og þar fær Ísland gullverðlaun, lokaniðurstaða samanlagðrar stigakeppni liggur svo fyrir í lok móts. Liðið verður svo aftur á keppnisvellinum næst komandi þriðjudag þegar keppt er í þrettán rétta „fine-dining“ máltíð fyrir 12 manns, en sú keppnisgrein ber nafnið „Chef’s Table”.
Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara er að vonum ánægður.
“Að koma frá litlu landi er styrkleikinn okkar, við þekkjumst öll og getum unnið mikið saman”.
Vísar þar til þess að liðið sem heild hefur færi á að hittast oft og æfa sem sér erfiðara og kostnaðarsamara hjá stóru löndunum. Hann bætir líka við að samstarf norrænu landsliðana og norræna klúbbanna sé gott og þar liggi líka styrkur. Norrænu löndin er fremst meðal þjóða í þessu fagi.
„Fólk er ekki feimið við að deila sinni reynslu öðrum til góða og það er talað um það hér hjá öðrum löndum hvað það sé að skila miklum árangri,“
bætir hann við.
Það er Klúbbur matreiðslumeistara sem rekur íslenska Kokkalandsliðið. Keppnismatreiðsla er í rauninni frádráttarkeppni og er fyrirkomulagið þannig að það byrja allir með 100 stig sem lækkar síðan með tilliti til snyrtimennsku, fagmennsku, útlits rétta og bragðs. Gullframmistaða er yfir 90 stig, silfurframmistaða milli 80 og 90 stig og brons milli 70 og 80 stig. Á mótinu í ár eru um 20 lönd sem taka þátt. Úrslit verða svo kynnt Lúxemborg á fimmtudaginn og liðið kemur svo heim á föstudag.
Íslenska kokkalandsliðið skipa:
Þjálfari:
Ari Þór Gunnarsson Fastus
Fyrirliði:
Sindri Guðbrandur Sigurðsson veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
Aron Gísla Helgason, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
Gabríel Kristinn Bjarnason, veitingastaðnum Héðinn Kitchen Bar
Ísak Darri Þorsteinsson, veitingastaðnum Tides
Erla Þóra Bergmann, Pálmadóttir veitingastaðnum Fjallkonan
Jakob Zarioh S. Baldvinsson, veitingastaðnum Sumac
Sveinn Steinsson, Eflu verkfræðistofu
Ísak Aron Jóhansson, Lux Veitingum
Chidapha Kruasaeng, Mosfellsbakarí og HR Konfekt
Ívar Kjartansson, veisluþjónustunni Rétturinum
Aþena Þöll Gunnarsdóttir, veitingastaðnum Fiskfélaginu
Hringur Oddsson, veitingastaðnum Tides
Marteinn Rastrick, Lux Veitingum
Fleiri fréttir um Kokkalandsliðið hér.
Myndir: Brynja Kr.Thorlacius
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýr veitingastaður á Laugarvatni – Sunneva og Sæþór: Við viljum að allir sem koma líði eins og þeir séu heima hjá sér
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Mesta úrval Japanskra hnífa á Íslandi
-
Keppni2 dagar síðan
Grétar Matthíasson er Meistari meistaranna
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Nýtt veitingasvæði rís í austurenda Smáralindar – 13 nýir veitingastaðir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Kristinn Frímann bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð á togaranum Kaldbak – Myndir
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Mijita er fyrsti 100% glútenfríi veitingastaðurinn í Wolt appinu
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Dill opnar á ný eftir breytingar – nú með nýju borðabókunarkerfi Noona
-
Keppni4 dagar síðan
Matreiðslukeppni stjórnmálaflokkana í húsi Fagfélagana