Viðtöl, örfréttir & frumraun
Þessi hótel og veitingahús bjóða upp á jólahlaðborð og aðrar hátíðarkræsingar – Biðlistar eftir jólahlaðborði
Jólahlaðborð og jólamatseðlar sem veitingastaðir bjóða upp á er klárlega ómissandi hluti af jólaundirbúningnum. Veitingageirinn.is hefur heyrt í mörgum veitingamönnum og eru allir í skýjunum með frábærar viðtökur, en á mörgum stöðum eru komnir biðlistar eftir jólahlaðborði.
Hér að neðan finnur þú hátíðarkræsingar sem að hótel og veitingahús bjóða upp á í ár.
Athugið að þessi listi er ekki tæmandi!
(Sendu okkur línu og við bætum þér á listann: [email protected])
Alvöru amerískt jólahlaðborð
Eitt vinsælasta jólahlaðborð landsins er á veitingastaðnum Haust á Fosshótelinu við Þórunnartún 1 í Reykjavík, en þar er í boði alvöru amerískt jólahlaðborð. Jólahlaðborðið hefst 18. nóvember og stendur til boða 1. janúar 2022. Wellington nautalund, heilsteiktur kalkúnn, kleinuhringir með gulli og margt fleira.
Borðapantanir og nánari upplýsingar um ameríska jólahlaðboðið hér.
Vinsæla danska jólaveislan snýr aftur
Nú í sumar opnaði Fosshótelið í Stykkishólmi á ný eftir miklar endurbætur(sjá nánar hér). Fosshótel Stykkishólmur mun bjóða upp á sannkallaða danska jólaveislu beint á borðið.
Flestir kannast við danska daga sem hafa verið haldnir í Stykkishólmi á hverju sumri allt frá árinu 1994 og er ein af elstu bæjarhátíðum bæjarins. Það er til að minna á dönsk tengsl bæjarins en fyrr á öldum voru hér m.a. starfandi danskir kaupmenn, læknir og lyfsali sem rak danskt apótek í bænum.
Danska jólaveislan verður á Fosshótel Stykkishólmi alla daga frá 25. nóvember til og með 19. desember, sjá nánar hér.
Mikil eftirvænting hjá Húsvíkingum
Fosshótel Húsavík fagnar því að jólin séu á næsta leiti með glæsilegu jólahlaðborði. Boðið verður upp á dýrindis mat og ljúfa skemmtun í anda jólanna. Jólahlaðborðið á hótelinu verður vinsælli með hverju árinu enda orðinn fastur liður í jólaundirbúningnum.
Mikil eftirvænting meðal Húsvíkinga hefur verið eftir jólahlaðborðinu en uppselt er öll kvöld.
Jólahlaðborð að hætti Úlfars Finnbjörnssonar
Glæsilegt jólahlaðborð á Grand Hótel Reykjavík og svo má ekki gleyma að sérstök tilboðsverð er á gistingu. Lifandi tónlist og klárlega einstök matarupplifun.
Úlfar Finnbjörnsson yfirmatreiðslumeistari á Grand Hótel Reykjavík verður með glæsilegt jólahlaðborð. Kristjana Guðný syngur ljúfan jóladjass við undirleik Fannars Sigurðssonar. Einstök matarupplifun sem kemur með jólin til þín.
Nær uppselt er á öll hlaðborðin, en nánari upplýsingar er hægt að skoða með því að smella hér.
Jólin á Apotekinu
Jólin hefjast 10. nóvember á Apotekinu við Austurstræti 16 í Reykjavík.
Apotekið býður upp á jólaseðil í hádeginu og á kvöldin ásamt Jóla Afternoon Tea.
Jólahlaðborðið á Múlaberg á sínum stað
Veitingastaðurinn Múlaberg á Akureyri hefur um árabil boðið upp á glæsilegt jólahlaðborð og í ár er engin undatekning á því. Jólahlaðborðið er í boði alla föstudaga og laugardaga frá og með 12. nóvember – 12. desember ásamt því að bjóða upp á hádegisjólahlaðborð og fjölskyldujólahlaðborð á völdum dagsetningum.
Jólaveislur á Aurora
Veitingastaðurinn Aurora á Akureyri býður upp á glæsilegt jólahlaðborð og girnilegt margrétta jólabröns hlaðborð í aðdraganda jólanna.
Jólahlaðborðið er í boði alla föstudaga og laugardaga frá 26. nóvember til 11. desember.
Staðurinn býður einnig upp á aðrar dagsetningar fyrir stærri hópa.
Margrétta jólabrönshlaðborð er í boði sunnudagana 28. nóv, 5. des, 12. des og 19. des ásamt laugardeginum 18. des. frá kl. 11:30 – 15:00.
Jóló hjá Ghost Kitchen
Snillingarnir hjá Ghost Kitchen (sjá nánar hér) verða með í jólavertíðinni og hafa sett saman glæslega jólamatseðil sem sjá má á mynd hér að neðan. Sjá einnig á facebook síðu Ghost kitchen hér.
Jólamatseðill KEF Restaurant
KEF Restaurant á Hótel Keflavík býður upp á jólamatseðla þar sem þú getur valið þér á milli 3-5 rétta seðla
Verð er 9.900 kr-12.900 kr. Möguleiki á að bæta við vínpörun með sérvöldum vínum með öllum réttum. Dagsetningar eru 19.-20. og 26.-27. nóvember og 3.-4., 10.-11. og 17.-18. desember.
Jólahlaðborð Sigló Hótels og Kaffi Rauðku
Þú kemst klárlega í jólaskap á hinu sívinsæla jólahlaðborði Kaffi Rauðku, en jólin á Sigló eru engu lík.
Torgið í jólaskapi
Veitingastaðurinn Torgið á Siglufirði býður upp á glæsilegt og kósý hlaðborð, dagana 4., 11. og 18. desember 2021. Nú þegar er 11. desember uppbókaður. Jólabröns með fjölskyldu og vinum er í boði sunnudaginn 12. desember og jólasveinnin kemur í heimsókn.
Að auki býður Torgið upp á jólagjafa körfu sem sjá má hér.
Nánar um jólahlaðborð Torgsins hér og jólabrönsinn hér.
Jólahlaðborð Hótels Laugarbakka
Hótel Laugarbakki við Skeggjagötu 1 á Hvammstanga býður upp á veglegt jólahlaðborð þar sem Rúnar Arnarson yfirmatreiðslumaður kokkar fram jólakræsingar.
Húsið opnar kl. 18:00 og veislan hefst kl. 19:00. Veislustjóri er Pálmi Sigurhjartarson. Danssýningar frá Dansfélaginu Hvönn og dansleikur verður eftir borðhald. Hlaðborðið kostar 9.900 og sérstök tilboð á gistingu verður yfir jólahlaðborðshelgar.
Sjá nánar á facebook síðu hótelsins hér.
Bjórböðin – Jólahlaðborð
Veitingastaður við bjórböðin sem staðsett er við Ægisgötu 31 á Dalvík býður upp á jólahlaðborð sem sjá má á meðfylgjandi mynd.
Kokkarnir Veisluþjónusta
Veisluþjónustan Kokkarnir bjóða upp á sérsvaldar gjafakörfu sem eru stútfullar af jólakræsingum sem sjá má hér.
7 rétta hátíðarsleðaferðalag
Það er alltaf gaman að lesa lýsingarnar á réttunum hjá Fiskfélaginu. Í ár heitir jólaseðillinn hjá Fiskfélaginu: Sleðaferðalag, en á heimasíðu þeirra má lesa eftirfarandi lýsingu:
Bjóddu bragðlaukunum í ævintýralegt SLEÐAFERÐALAG.
Tiplaðu á tungunni um snævi drifna dali & fjöll í leit að hinu fullkomna HÁTÍÐAR bragði.
MATREIÐSLUMENN & ÞJÓNAR okkar stýra sleðanum, ásamt litlum ÁLFUM & TRÖLLUM á Fiskfélaginu.
Matarævintýrið hefst við borðið þitt á FISKFÉLAGINU við Grófartorg í Reykjavík
Sjá nánari upplýsingar um Sleðaferðina hér.
Jólin á Sjávargrillinu
Sjávargrillið á Skólavörðustíg býður upp á fjögurra rétta jóla sælkeraveislu um kvöldið og þriggja rétta jólamatseðil í hádeginu. Herlegheitin hefjast 17. nóvember.
Jólin á Kopar
Veitingastaðurinn Kopar við Geirsgötu 3 í Reykjavík býður upp á glæsilegan jólaseðil ásamt jólabröns eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Nánar á facebook síðu Kopars hér.
Jólafílingur Festi
Festi bistró og bar á Hótel Volcano í Grindavík býður upp á dýrindis jólahlaðborð með öllu þessu hefbðundna. Bryndís Ásmunds og Búðabandið halda uppi jólastemningunni.
Jólahlaðborðið verður 27. nóvember og 4. desember, en sérvaldar dagsetningar fyrir hópa og fyrirtæki. Flott verð eða aðeins 9.900 á manninn.
Þetta er klárlega jólamatseðillinn sem þú verður að prófa
Jólamatseðillinn á veitingastaðnum Kol við Skólavörðustíg 40 í Reykjavík er glæsilegur að líta á. Jólin á Kol hófust 15. nóvember s.l. og stendur yfir til 23. desember.
Vantar þinn veitingastað á listann?
Ertu að bjóða upp á jólahlaðborð og eða jólamatseðla? Sendu okkur línu og við bætum þér á listann: [email protected]
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Lifandi fréttavakt: sýningin Stóreldhúsið 2024
-
Keppni2 dagar síðan
Grétar keppir á morgun á heimsmeistaramótinu – Sendinefnd Íslands er mætt á Madeira
-
Uppskriftir3 dagar síðan
Alvotech kokkarnir buðu upp á hrollvekjandi kræsingar – Uppskrift: Rauð flauelskaka með rjómaostakremi
-
Keppni2 dagar síðan
Úrslit í Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins 2024
-
Markaðurinn21 klukkustund síðan
Suðurlandsbraut 4a, fullbúinn veitingastaður til leigu
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Snjórinn fellur hjá Bako Verslunartækni á Stóreldhúsinu – Myndir
-
Keppni3 dagar síðan
Þessi keppa í Puratos-kökukeppninni á Stóreldhússýningunni á morgun
-
Keppni2 dagar síðan
Davíð Freyr sigraði í Puratos kökukeppninni