Markaðurinn
Matreiðslumaður óskast á Hótel Reykjavík Sögu í hjarta borgarinnar
Ertu að leita þér að skemmtilegri vinnu í dínamísku og alþjóðlegu umhverfi? Hótel Reykjavík Saga óskar að ráða til sín matreiðslumann í eldhúsið. Unnið er á 2-2-3 vöktum. Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.
Starfssvið
- Umsjón, skipulagning og þátttaka í matreiðslu og bakstri.
- Frágangur og geymsla á matvælum.
- Vinna með eldhústeymi í þróun nýrra rétta eftir árstíðum.
- Þátttaka í þjálfun starfsfólks í eldhúsi.
- Vinna með öðrum deildum til að ná settum markmiðum í þjónustu gesta.
- Aðkoma með birgðarhaldi í eldhúsi, pöntunum og frágang hráefna.
- Eftirlit með hreinlæti, HACCP.
Hæfniskröfur
- Menntun í matreiðslu skilyrði.
- Góð færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
- Frumkvæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum.
- Öryggisvitund og þekking á HACCP kostur.
Hótel Reykjavik Saga er einstaklega vel staðsett í hjarta miðbæjarins, nokkrum skrefum frá Tjörninni, Dómkirkjunni, listasöfnum og fjölmörgum verslunum og veitingastöðum.
Á hótelinu er að finna veitingastaðinn Fröken Reykjavik kitchen & bar. Þar er lögð er áhersla á bestu og ferskustu staðbundnu hráefni sem fáanleg eru en leikið er með bragð og áferð. Á veitingastaðnum sem hannaður var með ívafi af Art Deco stíl er líflegur bar, vínherbergi, vetrargarður og opið eldhús þar sem þú getur fylgst með kokkunum elda matinn.
Lærðu meira um Hótel Reykjavík Sögu.
Fullt starf – Umsóknarfrestur: 15.05.2026
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt3 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn2 dagar síðanIðan leggur áherslu á samtal við fagfólk á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanVissir þú? …að Pappírssalan er ekki bara með pappír?




