Markaðurinn
Fosshótel Jökulsárlón leitar að kokki og aðstoðarfólki í eldhús
Ertu að leita að skemmtilegu starfi í dýnamísku og alþjóðlegu umhverfi? Fosshótel Jökulsárlón óskar eftir að ráða til sín annars vegar kokk og hins vegar aðstoðarmann í eldhúsi.
Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.
Starfssvið – Kokkur
- Umsjón, skipulagning og þátttaka í matreiðslu og bakstri
- Frágangur, þrif, uppvask á aðstöðu og búnaði
- Frágangur og geymsla á matvælum
- Eftirlit með hreinlæti og vinnubrögðum samkvæmt HACCP
- Aðstoð við innkaup og birgðaumsjón í samráði við yfirmann
- Aðkoma að gerð matseðla í samráði við yfirmann
Hæfniskröfur – Kokkur
- Menntun og reynsla af matreiðslu er skilyrði
- Góð færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
- Frumkvæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
- Öryggisvitund og þekking á HACCP kostu
Starfssvið – Aðstoð í eldhúsi
- Umsjón, skipulagning og þátttaka í matreiðslu og bakstri.
- Frágangur og geymsla á matvælum.
- Eftirlit með hreinlæti, HACCP.
- Aðstoð við undirbúning rétta og framsetningu.
Hæfniskröfur – Aðstoð í eldhúsi
- Menntun í matreiðslu kostur.
- Reynsla af sambærilegum störfum.
- Góð færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
- Frumkvæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum .
- Öryggisvitund og þekking á HACCP kostur.
Húsnæði er í boði á staðnum gegn greiðslu.
Hótelið er fyrsta flokks 4 stjörnu hótel sem opnaði á Hnappavöllum við rætur Öræfajökuls í júní 2016. Í nágrenni hótelsins er eitt vinsælasta göngusvæði landsins. Hótelið er því kjörið fyrir útivistarfólk og fjallageitur, enda er úr meira en hundrað gönguleiðum að velja og útsýnið stórfenglegt til allra átta.
Lærðu meira um Fosshótel Jökulsárlón.
Fullt starf
Umsóknarfrestur: 25.05.2026
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni2 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




