Markaðurinn
Þjónn óskast á Fosshótel Reykholt í Borgarfirði
Ertu að leita þér að skemmtilegri vinnu í dínamísku og alþjóðlegu umhverfi? Fosshótel Reykholt óskar að ráða til sín þjón. Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni:
- Fagleg þjónusta og samskipti við gesti í veitingasal.
- Upplýsingagjöf um matseðil og hráefni.
- Framreiðsla á mat og drykk ásamt undirbúningi og uppsetningu.
- Halda vinnusvæði snyrtilegu og hreinu.
- Frágangur, þrif og eftirlit með hreinlæti samkvæmt HACCP.
- Reikningagerð, móttaka greiðslna og uppgjör.
- Umsjón með starfsmannamat og önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund.
- Fagmannleg framkoma, snyrtimennska.
- Góð samskiptahæfni, skipulagshæfileikar og stundvísi.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi.
- Lágmarksaldur 20 ára.
Í boði er húsnæði til leigu.
Fosshótel Reykholt býður upp á allt það helsta sem alvöru sveitahótel þarf að hafa. Á hótelinu er glæsileg heilsulind í rólegu, slakandi og endurnærandi umhverfi. Hótelið ber þess merki að vera á söguslóðum en þar má finna alls kyns minjar og söguslóðir frá tímum Snorra Sturlusonar sem gerir dvölina einstaklega skemmtilega fyrir forvitna ferðamenn.
Lærðu meira um Fosshótel Reykholt
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni4 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni4 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt2 dagar síðanQR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar
-
Frétt4 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn3 dagar síðanIðan leggur áherslu á samtal við fagfólk á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanVissir þú? …að Pappírssalan er ekki bara með pappír?




