Frétt
Fiona Sims hjá Guardian kolféll fyrir íslenskum veitingastöðum
Fiona var hér á landi fyrir stuttu en hún hefur ferðast um heiminn í nokkur ár og skrifað um veitingastaði og vín og gefið út bækur, einnig má til gamans geta þess að hún hefur 5 sinnum skrifað krítik um El Bulli á Spáni, þannig að þarna er á ferð persóna sem veit ýmislegt.
Ósk hennar var að fara á staði með nýjum yfirmatreiðslumönnum, sem væru undir þrítugt, og væru að skapa sér nafn í faginu, faglegur ráðgjafi var Úlfar Finnbjörnsson hjá Gestgjafanum, og urðu eftirfarandi staðir fyrir valinu: Orange, Vox, Panorama, Fiskmarkaðurinn og Humarhúsið
Hér verður stiklað á stóru í umsögnum hennar:
Orange – Chef Þórarinn Eggertsson
Hún segir að á Orange hafi það verið eins og flugeldasýning með þurrís, helíum og nítrogen, staffið klætt í hrekkjuvökubúning og þar fram eftir götunum eða eins og Tóti sagði henni að hann væri upphafsmaður á fun fine dinning á Íslandi.
Fiskmarkaðurinn – Chef Hrefna Rós Sætran
Hún sé undir asíuahrifum í útfærslum á matseðli sínum, lýsing sé drungaleg, innrétting byggð upp á bambus og gestir staðarins úr þotuliði borgarinnar.
Panorama – Chef Eyjólfur Gestur Ingólfsson
Hún var mjög hrifin af útsýninu og hrósar matnum, en nefnir að diskurinn hafi helst til verið of stór.
Humarhúsið – Chef Ottó Magnússon
Hún nefnir sérstaklega hvað humarinn hafi verið góður og í góðu jafnvægi við önnur brögð í réttunum.
Vox – Chef Gunnar Karl Gíslasson
Hún á ekki til nógu kröftug lýsingarorð til að lýsa upplifun sinni á Vox og þeirri eldamennsku sem þar er stunduð, og undraðist hún það mjög að Michelin spæjari væri ekki búinn að taka Vox út.
Hún tekur það djúpt í árinna að segja að næsta hit í matreiðsluheiminum sé ný norrænt eldhús
Yfir heildina var hún mjög ánægð og sagði að það væri hár standard á veitingastöðum hér á landi og annað sem þið ágætu veitingamenn og cheffar ættuð að hafa í huga þá hefur það heyrst í London að matargagnrýnendur þar horfi mikið til Íslands vegna þess hversu hagstætt það er fyrir þá að heimsækja landið nú um stundir, þannig að verið á tánum.
Hægt er að lesa fréttina í heild sinni með því að smella hér.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðan
Nýr Indverskur veitingastaður opnar í Miðbæ Selfoss
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel17 klukkustundir síðan
Nýr veitingastaður á Laugarvatni – Sunneva og Sæþór: Við viljum að allir sem koma líði eins og þeir séu heima hjá sér
-
Keppni17 klukkustundir síðan
Grétar Matthíasson er Meistari meistaranna
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýtt veitingasvæði rís í austurenda Smáralindar – 13 nýir veitingastaðir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun18 klukkustundir síðan
Kristinn Frímann bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð á togaranum Kaldbak – Myndir
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sindri Guðbrandur keppir 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Dill opnar á ný eftir breytingar – nú með nýju borðabókunarkerfi Noona
-
Keppni2 dagar síðan
Matreiðslukeppni stjórnmálaflokkana í húsi Fagfélagana