Viðtöl, örfréttir & frumraun
„Sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni“
- Ottó Magnússon birti þessar myndir með Facebook-færslunni.
Matreiðslumaðurinn Ottó Magnússon, sem meðal annars er eigandi veitingastaðarins Reykjavík Fish á Tryggvagötu, vakti athygli á seinagangi í leyfisveitingum Reykjavíkurborgar í færslu á Facebook í dag.
Tilefnið er fyrirhugaður flutningur veitingastaðarins af Tryggvagötu yfir á Vesturgötu 3, þar sem Café Rosenberg var áður til húsa.
Ottó segir að sótt hafi verið um leyfi vegna starfseminnar í apríl, en enn sé beðið eftir niðurstöðu. Að hans sögn hefur töfin þegar haft veruleg áhrif á undirbúning opnunarinnar.
„Horfum upp á fólk labba fram hjá lokuðum dyrum hjá okkur á miðju sumri og starfsfólkið sem við vorum búnir að lofa vinnu er á atvinnuleysisbótum hjá þér,“
skrifar Ottó meðal annars í færslunni og beinir orðum sínum til Hildar Björnsdóttur borgarstjóra.
Hann segir húsnæðið áður hafa hýst veitingastað og að breytingar á því séu litlar. Þrátt fyrir það hafi leyfisferlið dregist á langinn og kostnaðurinn vegna biðarinnar sé orðinn umtalsverður.
„Nú þegar höfum við borgað 8 milljónir í leigu og sér ekki fyrir endann á því. Byggingarfulltrúi og heilbrigðiseftirlit eru í sama húsi en tala ekki saman og ekki er hægt að ná í neinn til að fá svör,“
skrifar Ottó.
Borgarstjóri svaraði innan klukkustundar
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri brást fljótt við færslunni og svaraði Ottó um klukkustund síðar.
„Ekki gott að heyra! Ég sendi þér línu og skoða málið!“
skrifaði Hildur.
Ottó segir í samtali við Veitingageirann.is að viðbrögð borgarstjóra hafi verið skjót, þótt honum þyki miður að þurft hafi að vekja athygli á málinu opinberlega.
„Hún má nú eiga það, hún er fljót að svara. En sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni,“
segir Ottó.
Hann bendir jafnframt á að þau hafi áður opnað fjölda veitingastaða í Reykjavík og á Akureyri við góðan orðstír og aldrei lent í sambærilegum vandræðum.
Nú virðist málið hins vegar vera komið inn á borð borgarstjóra, sem tók strax vel í erindi Ottós og kvaðst ætla að skoða málið.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Markaðurinn5 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt4 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Markaðurinn7 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn6 dagar síðanOstur sem lyktar eins og „sviti og eftirsjá“





