Viðtöl, örfréttir & frumraun
Hrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans
Forseti Íslands afhenti í dag 14 Íslendingum heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Meðal þeirra sem hlutu þessa viðurkenningu var Hrefna Sætran matreiðslumeistari, sem var sæmd orðunni fyrir frumkvöðla- og uppbyggingarstarf í matreiðslu og veitingahúsarekstri.
Hrefna hefur um áratugaskeið verið einn af þekktari frumkvöðlum íslensks veitingageira og komið að uppbyggingu fjölmargra veitingastaða. Viðurkenningin er veitt fyrir framlag hennar til þróunar greinarinnar og áhrif hennar á íslenska matarmenningu.
Þeir sem hlutu fálkaorðuna í ár eru:
Andri Snær Magnason, rithöfundur, fyrir skapandi störf í þágu framtíðar.
Anna Björnsdóttir, kórstjóri, fyrir störf að mennta-, menningar- og félagsmálum í heimabyggð.
Ásdís Thoroddsen, leikstjóri, fyrir framlag til miðlunar á íslenskri menningararfleifð.
Ásgeir Haraldsson, barnalæknir og prófessor emeritus, fyrir fjölþætt störf á sviði barnalækninga og ónæmisfræða.
Hákon Ingvi Hansson, dýralæknir, fyrir framlag til atvinnumála og samfélagsmála í heimabyggð.
Hrefna Sætran, matreiðslumeistari, fyrir frumkvöðla- og uppbyggingarstarf í matreiðslu og veitingahúsarekstri.
Hreinn Valdimarsson, hljóðmeistari, fyrir framlag til hljóðvinnslu og varðveislu hljóðminja.
Karólína Elísabetardóttir, bóndi, fyrir frumkvöðlastarf í baráttunni gegn riðu í sauðfé.
Kolbrún Elfa Sigurðardóttir, kennari og fornfræðingur, fyrir framlag í þágu menntamála og klassískrar menntunar.
Miyako Þórðarson, prestur, fyrir störf í þágu heyrnarlausra.
Ólafur Arnalds, jarðvegsfræðingur, fyrir frumkvöðlastarf í rannsóknum á íslenskri náttúru og miðlun þeirra.
Ólafur Ólafsson, fyrirliði og körfuboltaleikmaður, fyrir þjónustu við heimabyggð á krefjandi tímum.
Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Vitafélagsins – íslensk strandmenning, fyrir störf í þágu íslenskrar þjóðmenningar.
Þorsteinn Eggertsson textahöfundur, fyrir framlag til íslenskrar dægurmenningar.
Mynd: Forseti.is
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni6 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt3 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




