Food & fun
Food & Fun hátíðin hefst í dag
Í dag hefst matarhátíðin Food & Fun í Reykjavík og næstu daga taka veitingastaðir borgarinnar á móti gestakokkum víðs vegar að úr heiminum með sérstaka hátíðarmatseðla.
Hátíðin er orðinn fastur hápunktur ársins fyrir matgæðinga og býður upp á upplifanir þar sem íslenskt hráefni er sett í nýjar og skapandi útfærslur í höndum innlendra og erlendra matreiðslumanna. Næstu daga verður því sérstaklega mikið líf í bænum þegar Food & Fun fyllir veitingastaði borgarinnar af stemningu og sköpunargleði.
Í ár eru allar borðabókanir aðgengilegar á einum stað í gegnum Dineout, þar sem hægt er að skoða þátttökustaði og bóka borð fyrir kvöld hátíðarinnar. Þeir sem vilja tryggja sér sæti á uppáhalds kvöldunum sínum hafa ekki eftir neinu að bíða.
Eftirtaldir veitingastaðir taka þátt í Food & Fun 2026 ásamt gestakokkum:
Apotek Restaurant: Danitza Gabriela (Perú)
Brasa: Victor Planas (Spánn)
Bryggjuhúsið: Sáfy Homola (Slóvakía)
EIRIKSSON Brasserie: Flora Mikula & Beatriz Gonzales (Frakkland)
Finnsson: Tom Cook (Bretland)
Fiskmarkaðurinn: Mark Edwards (Bretland)
Fjallkonan: Diletta Zenna (Ítalía)
Geiri Smart: Jesse Miller (Bandaríkin)
Hjá Jóni Restaurant: Aleksi Lukka (Finnland)
Kastrup: Sylvia Vavik Flåten (Noregur / Mexíkó)
La Primavera / Harpa: Luigi Pomata (Ítalía)
La Primavera / Marshallhúsið: Christopher Basset (Bretland)
Lóla: Adam Dahlberg (Svíþjóð)
Skreið: Iñaki & Mikel López de Viñaspre (Spánn)
Sumac Grill + Drinks: Paco Omaña (Portúgal)
Sushi Social: Alejandro Pérez & Ismael de Jesús Olivar Avalos (Mexíkó)
Tides: Diego Muñoz (Perú)
Tres Locos: Carlos Barragán (Mexíkó)
Vox Brasserie & Bar: Ricardo Aquista (Spánn)
Bókanir fara fram á dineout.is og í Dineout appinu.
Nánari upplýsingar: foodandfun.is
-
Markaðurinn3 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni4 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn3 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt5 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn
-
Frétt1 dagur síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað



