Vertu memm

Frétt

Matreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið

Birting:

þann

Matreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið - Stockfish Journey - Slow food

Gestir Stockfish Journey geta gengið undir skreiðina og kynnst aldagömlum hefðum við verkun fisksins.
Mynd: Facebook / Slow Food á Íslandi

Íslensk skreiðarverkun er nú í sviðsljósinu á sýningunni Stockfish Journey í Tórínó á Ítalíu.  Sýningin er hluti af opinberri dagskrá Terra Madre Salone del Gusto, alþjóðlegs matarviðburðar Slow Food.

Sýningin er sett upp á Piazza Carlo Alberto og er samstarfsverkefni Slow Food á Íslandi, Slow Food Bergen í Noregi, Slow Food Mearra-Sápmi og Kålrotsakademien í Svíþjóð.

Sjá einnig: Skreið frá Íslandi í sviðsljósinu í Tórínó

Að því er fram kemur á vef Slow Food in the Nordic Countries er markmiðið að segja sögu skreiðarinnar, ekki aðeins sem matvælis heldur einnig þeirra matarhefða og menningar sem hafa þróast í kringum hana í gegnum aldirnar.

Sagan nær langt út fyrir Norðurlöndin enda hefur verslun með skreið tengt saman lönd og menningarheima. Á sýningunni er meðal annars fjallað um leið skreiðarinnar frá Norðurlöndunum til Ítalíu, Nígeríu, Króatíu og Slóveníu.

Skreiðin tengt saman lönd og menningarheima

Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari og formaður Slow Food á Íslandi segir sögu skreiðarinnar bæði umfangsmikla og margbrotna.

Matreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið - Stockfish Journey - Slow food

Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari ásamt Guðmundi Árnasyni, sendiherra Íslands á Ítalíu, við Stockfish Journey sýninguna í Tórínó.
Mynd: slowfoodnordic.com

Hún bendir á að skreiðin eigi rætur sínar við Norður Atlantshaf þar sem fiskurinn hafi verið þurrkaður með hjálp vinds og sólar. Þaðan hafi hann ferðast milli heimsálfa og orðið mikilvæg verslunarvara sem tengdi norðurslóðir meðal annars við Ítalíu og Nígeríu.

„Það er ekkert einfalt verkefni að segja sögu skreiðarinnar, enda er ferðalag hennar jafn umfangsmikið og margbrotið og fiskurinn sjálfur,“

segir Dóra í umfjöllun Slow Food.

Gestir fá tækifæri til að upplifa þessa sögu með öllum skilningarvitum. Þeir geta gengið inn í þurrkhjall, heyrt fiskinn hreyfast, fundið einkennandi lyktina, skoðað og snert skreiðina og fengið að smakka á þessari aldagömlu matarhefð.

Sterk tengsl Íslands og Ítalíu

Skreiðarverkun á sér aldalanga sögu á Íslandi og í Noregi og hefur skreið lengi verið mikilvæg útflutningsvara. Ítalía hefur þar verið sérstaklega mikilvægur markaður.

Á Íslandi eru einnig þurrkaðir þorskhausar ásamt klumbubeini fyrir Nígeríumarkað. Á Ítalíu er stoccafisso, eða baccalá, rótgróinn hluti af matarhefðum víða um landið. Í Svíþjóð tengist þurrkaður fiskur meðal annars jólahaldinu þar sem lutfisk á sér langa hefð.

Matreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið - Stockfish Journey - Slow food

Skreiðin er í aðalhlutverki á Stockfish Journey sýningunni.
Mynd: Facebook / Slow Food á Íslandi

Guðmundur Árnason, sendiherra Íslands á Ítalíu, var viðstaddur opnun sýningarinnar. Þar vakti hann athygli á sterkum tengslum íslenskrar skreiðar og ítalskrar matarmenningar og að útflutningur á íslenskri skreið til Ítalíu ætti sér meira en aldarlanga sögu.

Tord Tukon, sendiherra Noregs á Ítalíu, sagði skreiðina snúast um mun meira en fisk og viðskipti. Þar væri um að ræða menningu og meira en 600 ára gamlar hefðir.

Gengið undir hangandi skreið

Elín Ringsted hannaði sýninguna en mikil áhersla er lögð á að gestir upplifi skreiðina með eigin augum, nefi, höndum og bragðlaukum.

Matreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið - Stockfish Journey - Slow food

Elín Ringsted við sýninguna sem hún hannaði fyrir Stockfish Journey í Tórínó.
Mynd: Facebook / Slow Food á Íslandi

Skreiðin hangir á viðarhjöllum og geta gestir gengið undir raðir af þurrkuðum fiski. Með því að toga í strengi sem tengdir eru upplýsingaspjöldum fá þeir jafnframt að kynnast betur aðferðum við verkun, gæðaflokkun og matreiðslu skreiðarinnar.

Stockfish Journey tengist einnig vinnu við tilnefningu skreiðar og hefða í kringum þurrkun fisks á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.

Sýningin verður opin á Piazza Carlo Alberto til sunnudagsins 27. september. Að Tórínó loknu er fyrirhugað að sýningin ferðist áfram til Feneyja, Bergen, Svíþjóðar, Norður Noregs og Íslands.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið