Markaðurinn
Þessi vefja með grillosti er fullkomin fyrir léttan kvöldmat
Eins og með allar góðar vefjur þá er alltaf jafn erfitt að loka þeim þegar innihaldið er gott. Hér erum við með ofnbakaðan grill- og pönnuost í vefjunni ásamt grænmeti og jógúrtsósu.
Vefjan sem ég er með eru próteinpizzubotnar en einnig er sniðugt að nota pítubrauð eða venjulegar þunnar vefjur.
Vefjur:
10 g lyftiduft
140 g hveiti
230 g hreint Ísey skyr
Ostur:
1 stk. grill- og pönnuostur frá MS
1 – 2 msk. olía
1 tsk. cummin
1 tsk. kóríander krydd
1 tsk. svartur pipar
1 tsk. hvítlaukskrydd
1 tsk. kanill
Jógúrtsósa:
200 g grísk jógúrt frá Gott í matinn
1 -2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk. svartur pipar
safi úr hálfri límónu
Meðlæti:
kál
gúrka
tómatar
rauðlaukur
Aðferð
Byrjið á að búa til brauðin ef þið viljið heimatilbúnar vefjur. Setjið innihaldsefnin þrjú í skál og hnoðið saman. Skiptið deiginu í fjóra hluta og fletjið út í fjögur hringlaga brauð. Færið yfir á ofnplötur með bökunarpappír og bakið við 180 gráður í 11-13 mínútur í blástursofni.
Á meðan brauðið er í ofninum er grill- og pönnuosturinn skorinn í sneiðar með ostaskera. Setjið ostinn næst í skál ásamt olíu og kryddið. Raðið sneiðunum á bökunarpappír og passið að láta sneiðarnar ekki liggja ofan á hver annarri. Bakið við 180 gráður í 13-15 mínútur.
Næsta mál á dagskrá er að útbúa jógúrtsósuna og skera niður grænmeti. Þegar allt er klappað og klárt er bara eftir að setja þetta allt saman og njóta.
Höfundur: Helga Magga
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni1 dagur síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Markaðurinn2 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt2 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt4 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020



