Markaðurinn
Nóg um að vera hjá ÓJ&K-ÍSAM í Korputorginu
Mikið verður um að vera hjá ÓJ&K-ÍSAM í Korputorginu á næstu dögum þar sem fyrirtækið stendur fyrir þremur sérhæfðum námskeiðum í samstarfi við ítalska framleiðandann Fabbri. Um er að ræða bæði kokteila- og kaffinámskeið sem og tvö ísgerðarnámskeið sem fara fram í næstu viku.
Námskeiðin verða haldin í kennslueldhúsi ÓJ&K-ÍSAM á Korputorgi, við inngang B08, og er skráning þegar hafin.
Á þriðjudaginn 5. maí klukkan 13 fer fram námskeið í kokteilum og kaffidrykkjum undir leiðsögn Vittorio Agosti, sem er reynslumikill fulltrúi Fabbri. Námskeiðið er sérstaklega ætlað kaffibarþjónum og kokteilþjónum sem vilja bæta við sig þekkingu og færni í faginu.
Daginn eftir, miðvikudaginn 6. maí, verða tvö námskeið á dagskrá. Klukkan 9 hefst námskeið í gelato-ísgerð frá grunni, ætlað bökurum, konditorum og ísgerðum. Leiðbeinandi er Silvia Gaetta, gelato-meistari frá Fabbri, sem fer yfir aðferðir við að útbúa ítalskan gelato frá grunni.
Síðar sama dag, klukkan 13, heldur Silvia annað námskeið þar sem kynnt verður svokölluð Simplé-lína frá Fabbri. Það námskeið er sniðið að veitingahúsum og veisluþjónustum sem vilja einfalda ísgerð án þess að fórna gæðum.
Áhugasamir geta skráð sig með því að senda tölvupóst á [email protected] eða [email protected].
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn3 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn3 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn2 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Frétt1 dagur síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni1 dagur síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí







