Viðtöl, örfréttir & frumraun
Nýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
Það hefur verið líf og fjör í starfsemi Bragðlauka síðastliðna mánuði, þar sem ýmislegt nýtt hefur bæst við reksturinn og áherslur skýrst enn frekar.
Meðal þess sem hefur vakið athygli er nýlegur veitingastaður Bragðlauka að Urðarhvarfi í Kópavogi, þar sem viðtökur gesta hafa verið góðar. Í hádeginu er í boði hlaðborð með salatbar, súpu og brauði, tveimur aðalréttum og fjölbreyttu meðlæti, auk eftirréttar og kaffi. Einnig er hægt að panta af matseðli staðarins.
Á kvöldin breytist andrúmsloftið og meiri ró færist yfir rýmið, þar sem áhersla er lögð á samspil matar og drykkja. „Kokteill vikunnar“ er þar áberandi liður, en hann er í höndum Guðmundar Jónssonar yfirþjóns sem nálgast drykkjargerð af fagmennsku og næmni kokksins. Guðmundur er bæði matreiðslu- og framreiðslumeistari og kom til liðs við Bragðlauka eftir að áform hans um eigin rekstur í Grindavík fóru á bið vegna eldgosa.
Listin fær pláss á veggjunum
Bragðlaukar hafa jafnframt opnað rými sitt fyrir myndlist og eru veggir staðarins nú prýddir verkum eftir íslenska listamenn.
Þar má meðal annars finna verk eftir Loga Hrafn, Bjarka Snæ Ólafsson og Þorstein Faxa Halldórsson. Flest verkanna eru til sölu og er markmiðið að skapa vettvang þar sem list og matarmenning mætast.
Frá hádegisþjónustu í heildstæða starfsemi
Að baki Bragðlaukum standa hjónin Fúsi Jónsson matreiðslumaður og Arna Sif Gunnarsdóttir, sem hafa um árabil byggt upp rekstur á sviði veitinga- og veisluþjónustu.
Starfsemin hefur þróast frá því að snúast um hádegisverð fyrir fyrirtæki yfir í heildstæða þjónustu fyrir viðburði af ýmsu tagi.
Veisludeild í sókn
Samhliða þessu hefur fyrirtækið aukið framboð sitt á salarleigu fyrir veislur og viðburði, bæði í eigin rými og í matsal Listaháskóla Íslands. Þar er boðið upp á aðstöðu fyrir fjölbreytt tilefni, allt frá litlum samverustundum upp í stærri viðburði.
Í veisludeildinni starfar reynslumikið teymi undir stjórn Guðmundar Sævars Guðmundssonar matreiðslumanns, þar sem lögð er áhersla á ferskt hráefni og vandaða framkvæmd. Samhliða þessum breytingum hafa Bragðlaukar styrkt stöðu sína enn frekar og halda áfram að þróa þjónustu sína í takt við eftirspurn.
Myndir: úr einkasafni / Bragðlaukar
-
Keppni5 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Markaðurinn5 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Markaðurinn6 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt6 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn2 dagar síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu
-
Markaðurinn2 dagar síðanTax Free afsláttur af öllum vörum hjá Ásbirni
















