Keppni
Fimm keppendur takast á um titilinn Grænmetiskokkur ársins 2026
Keppnin um titilinn Grænmetiskokkur ársins 2026 fer fram í dag, föstudaginn 27. mars, í IKEA þar sem fimm öflugir keppendur etja kappi. Keppnin hófst klukkan 11 í morgun og stendur fram eftir degi, en gert er ráð fyrir að henni ljúki um klukkan 18.
Keppendur í ár eru Bjarni Ingi Sigurgíslason frá Fröken Reykjavík, Rúnar Atli Wiium frá Fiskfélaginu, Þorlákur Sigurðsson frá Lóla, Monica Daniela Panait frá Hótel Geysi og Einar Arnbjargarsson. Öll hafa þau vakið athygli fyrir metnaðarfulla nálgun í matreiðslu og verður spennandi að sjá hver stendur uppi sem sigurvegari.
Fjölbreytt dagskrá heldur áfram um helgina í IKEA þar sem áhersla er lögð á fagmennsku og nýsköpun í matargerð. Á laugardag fá nemar í matreiðslu tækifæri til að spreyta sig þegar þeir keppa ásamt aðstoðarmönnum í sjávarréttakeppni.
Úrslit úr öllum keppnunum verða síðan kynnt við hátíðlega athöfn á sunnudagskvöldi á NASA í Hótel Parliament í miðbæ Reykjavíkur.
Hægt er að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu þar sem áhorfendur fá innsýn í spennandi verkefni keppenda og stemninguna á staðnum.
Veitingageirinn.is mun fylgjast grannt með gangi mála alla helgina og flytja lesendum fréttir og myndir jafnóðum.
Tengt efni
-
Markaðurinn2 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn2 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Frétt5 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt5 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt4 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Frétt7 dagar síðanÁttu þessa grillpönnu? Þá skaltu hætta að nota hana strax



