Frétt
Rannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið
Rannsókn lögreglu á E. coli-hópsmitinu sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í október 2024 er enn til meðferðar hjá ákærusviði Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
RÚV greindi frá því að einn einstaklingur væri enn með réttarstöðu sakbornings vegna málsins. Fleiri höfðu áður þá stöðu, þar á meðal matráður leikskólans og Félagsstofnun stúdenta, sem rekur Mánagarð.
Árni Bergur Sigurðsson, settur sviðstjóri ákærusviðs, vildi ekki upplýsa RÚV um hver væri enn með stöðu sakbornings. Þá liggur ekki fyrir hvort ákæra verður gefin út í málinu.
Hópsmitið kom upp eftir hádegisverð á leikskólanum 17. október 2024. Alls greindust 49 einstaklingar með E. coli-smit, þar af 45 börn á Mánagarði.
Tólf börn voru lögð inn á Barnaspítala Hringsins, þar af fimm á gjörgæslu. Tvö börn þurftu á skilunarmeðferð að halda vegna nýrnabilunar og að minnsta kosti eitt barn þurfti að fara í öndunarvél.
Rannsókn á hópsmitinu leiddi í ljós að sama afbrigði E. coli-bakteríunnar fannst í sýnum úr börnum og í hakki sem notað var við matseld á leikskólanum. Raðgreining á erfðaefni bakteríanna sýndi að uppruninn var sá sami.
Í upplýsingum Reykjavíkurborgar um rannsókn málsins kom jafnframt fram að meðferð hakksins við matseldina hefði verið ófullnægjandi. Hakkað kjöt þarf að gegnumsteikja þannig að kjarnhiti nái að minnsta kosti 75 gráðum.
Tengt efni:
Engin krafa um menntun eða fræðslu – Nauðsynlegt að herða reglur og auka fræðslu um matvælaöryggi
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði




