Frétt
René Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki

René Redzepi á starfsmannafundi hjá Noma þar sem hann tilkynnir afsögn sína.
Samsett mynd: skjáskot úr myndbandi.
René Redzepi, einn þekktasti matreiðslumaður heims og stofnandi hins heimsfræga veitingastaðar Noma í Kaupmannahöfn, hefur ákveðið að stíga til hliðar frá daglegum rekstri staðarins eftir alvarlegar ásakanir um misbeitingu valds og ofbeldi gagnvart starfsfólki. Það var mbl.is sem greindi fyrst frá málinu.
Ákvörðunin kemur í kjölfar umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum þar sem fjöldi fyrrverandi starfsmanna lýsti erfiðu vinnuumhverfi á veitingastaðnum á árunum 2009 til 2017. Í frásögnum þeirra kemur fram að andlegt og líkamlegt ofbeldi hafi viðgengist í eldhúsinu, meðal annars öskur, niðurlægingar og í sumum tilvikum líkamlegar árásir.
Sjá einnig: Alvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
René Redzepi brást við ásökununum með yfirlýsingu þar sem hann viðurkennir að hegðun hans hafi á köflum verið skaðleg og að hann beri ábyrgð á því. Hann segir þó að ekki sé allt í frásögnum starfsmanna nákvæmlega eins og lýst sé, en að það breyti ekki þeirri staðreynd að hann hafi valdið fólki sársauka.
Samhliða ákvörðuninni hefur René Redzepi einnig sagt sig úr stjórn MAD, samtaka sem hann stofnaði sjálfur til að efla umræðu og þróun í alþjóðlegum veitingageira.
Noma hefur í mörg ár verið talinn einn áhrifamesti veitingastaður heims og hefur margoft verið valinn sá besti í heimi. Þrátt fyrir brotthvarf René Redzepi úr daglegum rekstri mun teymi staðarins halda starfseminni áfram, meðal annars með PopUp veitingastað í Los Angeles sem þegar hefur selst upp.
Sjá einnig: René Redzepi flytur til Los Angeles
Undanfarin ár hafa stjórnendur Noma einnig reynt að bæta starfsumhverfi á staðnum, meðal annars með því að greiða starfsnám, stytta vinnuvikur og setja á laggirnar formlegt mannauðskerfi.
Málið hefur vakið mikla umræðu innan alþjóðlegs veitingageira og hefur verið bent á að það varpi ljósi á þá hörðu vinnumenningu sem lengi hefur ríkt í sumum af virtustu eldhúsum heims.
Tilkynnti afsögnina á starfsmannafundi
Hér má sjá þegar René Redzepi tilkynnir starfsfólki Noma um afsögn sína.
Ef Instagram færslan birtist ekki hér fyrir neðan er ráð að endurhlaða síðuna (e. refresh).
View this post on Instagram
Myndir: skjáskot úr myndbandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or18 klukkustundir síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Markaðurinn6 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt5 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni3 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanVinsælustu pizzaáleggin á Íslandi
-
Keppni6 dagar síðanFerð til Ítalíu í verðlaun í pizzakeppni





