Markaðurinn
Kjúklingabringur í ljúffengri rjóma- og sweet chili sósu
Einstaklega freistandi og ljúffengur réttur sem tekur matartímann á nýtt plan. Það er eitthvað svo notalegt við rjómalagaða kjúklingarétti sem bakast í ofni í einu fati og nú fer sá árstími í hönd þar sem sjóðheitir og fljótlegir ofnréttir hitta beint í mark.
Innihald
5 skammtar
5 stk. kjúklingabringur
1 stk. blaðlaukur
2 dl sweet chili sósa
3 dl matreiðslurjómi frá Gott í matinn
200 g rjómaostur með graslauk og lauk (ein dós)
1 stk. kjúklingateningur
1⁄2 msk. sojasósa
rifinn pizza- eða gratínostur eftir smekk
Meðlæti
Gott salat og hrísgrjón eða nýbakað brauð
Skref 1
- Hitið ofn í 200 gráður með blæstri.
- Skerið kjúklingabringur í bita.
- Hitið pönnu með smá smjöri, saltið og piprið kjúklingabitana og brúnið þá vel eða þar til þeir eru nánast fulleldaðir.
- Setjið kjúklinginn þá í eldfast mót.
Skref 2
- Lækkið hitann á pönnunni, setjið smá smjör á pönnuna og steikið púrrulaukinn þar til hann mýkist aðeins, ca. 3 mínútur.
- Setjið rjómann, rjómaostinn, kjúklingatening, sojasósu og sweet chilli sósuna út á pönnuna og leyfið að malla aðeins, smakkið til með sweet chilli sósunni og meiri soja ef ykkur finnst þurfa.
- Bætið örlitlu vatni saman við sósuna ef ykkur finnst hún of þykk.
Skref 3
- Hellið sósunni því næst yfir kjúklinginn og toppið með rifnum osti.
- Bakið í ofni við 200 gráður í 15 mínútur eða þar til kraumar í sósunni og hún hefur tekið lit.
- Berið fram með góðu grænu salati og grjónum eða nýbökuðu brauði.
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir – gottimatinn.is
-
Keppni6 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Keppni2 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Markaðurinn2 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Starfsmannavelta20 klukkustundir síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Markaðurinn2 dagar síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski




