Nemendur & nemakeppni
Framreiðslunemar í heimsókn á Edition og Uppi bar
Nemendur í öðrum bekk framreiðslu við Hótel og matvælaskólann fóru nýverið í fræðandi vettvangsferð til Reykjavíkur þar sem þau kynntu sér starfsemi á tveimur þekktum veitinga- og gististöðum borgarinnar.
Á The Reykjavik Edition fengu þau hlýjar móttökur hjá Katrínu Sigurðardóttur, aðstoðarsölustjóra hótelsins. Hún tók nemendur í gegnum hinar fjölbreyttu aðstæður hótelsins, sýndi þeim sali, bari, heilsulind og herbergi og fór yfir hvað Edition-merkimiðinn stendur fyrir innan Marriot-keðjunnar, að því er fram kemur í Facebook-færslu Menntaskólans í Kópavogi.
Eftir heimsóknina á Edition lá leiðin á Uppibar þar sem Styrmir Bjarki Smárason tók á móti hópnum. Styrmir er fyrrum framreiðslunemi í Hótel og matvælaskólanum sem hefur á síðustu árum aflað sér víðtækrar reynslu í fagsviðinu. Hann sagði frá starfinu á veitingastaðnum, framtíðaráformum og sinni eigin starfsreynslu, meðal annars frá hálfs árs dvöl á þriggja stjörnu Michelin veitingastaðnum Maaemo í Osló þar sem hann starfaði á fullum launum.
Ferðin var bæði hvetjandi og lærdómsrík fyrir nemendur sem fengu innsýn í faglega framreiðslu, þjónustu og metnað á hæsta stigi.
Myndir: mk.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni5 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Markaðurinn4 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn4 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt6 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn
-
Frétt3 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt2 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð





