Viðtöl, örfréttir & frumraun
Nuno og Bento kaupa Fálkahúsið – eiga nú húsið að baki Sæta Svínsins, Fjallkonunnar og Tipsy
Portúgölsku veitingamennirnir Nuno Faria og Bento Amaral hafa fest kaup á Fálkahúsinu við Hafnarstræti 1-3, en fasteignin hýsir þrjá veitingastaði í þeirra eigu: Sæta Svínið, Fjallkonuna og kokteilbarinn Tipsy. Með kaupunum styrkja þeir enn frekar stöðu sína í miðborginni, þar sem þeir reka einnig veitingastaðina Apótekið á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis, Sushi Social við Þingholtsstræti og Tres Locos á Hafnarstræti og Tapasbarinn.
Samkvæmt heimildum vefsins eirikurjonsson.is var kaupverð á fermetra rúmlega 700 þúsund krónur, sem telst fremur hóflegt miðað við staðsetningu eignarinnar í hjarta borgarinnar – þar sem eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði er mikil og verð yfirleitt hátt.
Fálkahúsið er hluti af sögulegu borgarlandslagi og hefur á undanförnum árum þróast í einn vinsælasta veitingakjarna Reykjavíkur. Kaupin eru enn eitt skrefið í vaxandi áhrifum Nuno og Bento á íslenska veitingamarkaðnum, en þeir hafa á undanförnum árum skapað sér traustan sess með áherslu á gæði, alþjóðlegt andrúmsloft og öfluga þjónustu.
Mynd: midborgin.is
-
Markaðurinn3 dagar síðanLangar þig að reka eldhús með mikla möguleika?
-
Frétt5 dagar síðanEinkakokkar meðal eftirsóttustu matreiðslumanna heims
-
Frétt6 dagar síðanÍslenskir veitingastaðir sagðir of tregir til að hækka verð
-
Frétt4 dagar síðanEinsi Kaldi og Vöruhúsið semja við Vestmannaeyjabæ
-
Frétt5 dagar síðanVanmerkt pestósósa innkölluð úr verslunum Krónunnar
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanHeilum gámi af kampavíni stolið á leið til Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanLitlu hlutirnir skipta mestu máli hjá Agga Sverris
-
Frétt5 dagar síðanPálmasykur frá Royal Orient innkallaður



