Keppni
Auddi Blö og Steindi Jr. verða kynnar á úrslitakvöldi Tipsý Bar
Tólf kokteilar, valdir úr miklum fjölda innsendinga, öttu kappi í forkeppni Tipsý & Martini sem fram fór í gærkvöldi. Að lokinni spennandi keppni stóðu sex frábærir drykkir uppi og tryggðu sér sæti í úrslitum.
Úrslitakvöldið fer fram á Tipsý Bar fimmtudagskvöldið 19. febrúar klukkan 20.00. Þar munu hæfileikaríkir barþjónar etja saman kröftum og reyna að heilla bæði dómnefnd og gesti með útsjónarsemi, fagmennsku og framsetningu.
Kynnar kvöldsins verða þeir Auddi Blö og Steindi Jr., en í gestadómarahlutverki verða Birgitta Haukdal og Sunneva Einars. Þá sér DJ Suzi um tónlistina og lofað er trylltri stemningu fram eftir kvöldi.
Keppendurnir sex sem mættir eru til úrslita eru:
Sara Rós með kokteilinn Italian Flow.
Birkir Tjörvi Pálsson með L’elisir D’amore.
Andri Dagur með Le piccole cose.
Guðjón með Raggio di sole.
Ragnar Erluson með Rossi di Riviera.
Heimir Morthens með Tricolore.
Það er til mikils að vinna. Sigurvegari kvöldsins hlýtur 300.000 króna gjafabréf í ferð til Costa Blanca með Úrval Útsýn.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Það er því um að gera að kíkja við og upplifa spennuna á staðnum þegar besti kokteill kvöldsins verður krýndur.
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði





