Keppni
Þessir fimm keppa til úrslita um titilinn Kokkur ársins 2025 – Grænmetiskokkur ársins fer fram á morgun
Forkeppni um Kokk ársins 2025 fór fram í dag, fimmtudaginn 27. mars, þar sem margir af fremstu matreiðslumönnum landsins öttu kappi.
Einstök aðstaða hjá IKEA
IKEA hefur útbúið fimm keppniseldhús sérstaklega fyrir keppnina, staðsett rétt við útgang verslunarinnar, inn á sjálfsafgreiðslulagerinn. Starfsfólk IKEA hefur sýnt mikla fagmennsku og skipulag við uppsetningu og niðurrif á eldhúsunum, og á það sannarlega lof skilið, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara.
Krafa forkeppninnar – hráefni og tímasetningar
Í forkeppninni var gerð sú krafa að keppendur notuðu þorskhnakka, svínasíðu, jarðskokka og blöðrukál í réttina sína. Fyrstu réttir voru bornir fram kl. 13:15 og þeir síðustu kl. 15:15.
Keppendur í forkeppninni voru:
Wiktor Pálsson – Lola
Ísak Aron Jóhannsson – Múlakaffi
Gunnar Georg Gray – Brut
Gabríel Kristinn Bjarnason – Expert
Hugi Rafn Stefánsson – Fröken Reykjavík
Kristín Birta Ólafsdóttir – Grand Hótel
Bjarni Ingi Sigurgíslason – Veislulist
Jafet Bergmann Viðarsson – Torfhús
Þeir sem komust áfram og keppa í úrslitum á laugardag eru:
Wiktor Pálsson – Lola
Ísak Aron Jóhannsson – Múlakaffi
Gunnar Georg Gray – Brut
Gabríel Kristinn Bjarnason – Expert
Hugi Rafn Stefánsson – Fröken Reykjavík
Grænmetiskokkur ársins – keppnin haldin á morgun föstudag
Á morgun, föstudaginn 28. mars, fer fram keppnin Grænmetiskokkur ársins 2025. Fjórir keppendur taka þátt og eru þeir eftirfarandi:
Monica Daniela Panait – Hótel Geysir
Dominika Kulińska – Mötuneyti sveitarfélagsins Stykkishólms
Andrés Björgvinsson – LUX veitingar
Kamil Ostrowski – Brak
Keppnisfyrirkomulag og hráefni
Keppendur fá fimm klukkutíma til undirbúnings og verða ræstir með fimm mínútna millibili. Eldaður er þriggja rétta matseðill fyrir 12 manns, með eftirfarandi hráefnum sem grunn:
Forréttur: Tómatur, fennel og blaðsellerí
Aðalréttur: Arborio hrísgrjón, hvítur spergill og grasker
Eftirréttur: Basilíka, jarðarber og rjómaostur
Úrslitin verða kynnt á laugardag
Úrslit í báðum keppnum verða kynnt í Bjórgarðinum eftir kl. 18:00 á laugardaginn. Við munum birta nánari upplýsingar um framvindu keppnanna eftir því sem líður á.
Sjá einnig: Fréttavaktin: Forkeppni um Kokk ársins 2025
Andreas Jacobsen matreiðslumeistari tók meðfylgjandi myndir frá forkeppninni í dag.
-
Keppni6 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Markaðurinn3 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Markaðurinn5 dagar síðanViltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Markaðurinn4 dagar síðanBrauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð
-
Markaðurinn3 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
















