Frétt
Vetrarsúkkulaði Omnom er komið í nýjan búning
Vetrarlína Omnom er komin út og sækir innblástur sinn í íslenskar jólahefðir sem ylja landsmönnum um hjartarætur með minningum liðinna jóla. Omnom sækir innblástur í matarhefðir, bragðtóna og venjur sem hringja í jólinn. Þrjár bragðtegundir liðinna ára urðu fyrir valinu og færa landsmönnum hinn sannkallaða jólaanda.
Dark nibs + Rapberry
Madagaskar kakóbaunin á sérstakan stað hjá Omnom en hún er upphaf fyrirtækisins. Margslungnir, fíngerðir tónar og fislétt rauðberjabragðið gerir Madagaskar 66% súkkulaðið að einu stóru ástarævintýri fyrir bragðlaukana.
Líkt og hefðin er á jólum, vildum við einnig klæða súkkulaðið okkar í sparifötin.
Hátíðlega fagurrauð hindber með sinn sérstaka sæta keim, pöruð með vænlegu dassi af kakónibbum fullkomna pakkann.
Milk + Cookies
Það er ómögulegt að hugsa til jóla án þess að upp komi í hugann minning um glas af ískaldri mjólk og piparkökum. Omnom vildi fanga þessari minningu og leitaði því til Brauð&co með hjálp við að búa til hina fullkomu krydduðu smáköku. Grunnurinn var unninn úr afgangs möndlum úr framleiðslunni Omnom, tröllahöfrum og ríkulegu magni af engifer og kanil. Smákökurnar liggja í ljúfum faðmi Madagaskar mjólkursúkkulaðis og saman er þetta par ósigrandi.
Spiced White + Caramel
Malt og Appelsín. Kryddað, maltað hvítt súkkulaði með appelsínuberki, kanil og stökkri karamellu. Þessi blanda kemur öllum í jólafíling.
Flestir Íslendingar halda fast í þessa ríkulegu hefð af hátíðlegri bragðupplifun, sem er engri lík. Þetta súkkulaði er óður Omnom til jólanna.
Vetrarlína Omnom er einungis til í takömörkuðu upplagi.
Myndir: aðsendar
-
Frétt3 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Keppni7 dagar síðanNegroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Keppni11 klukkustundir síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Markaðurinn7 dagar síðanSupermeals tekur næsta skref í sjálfvirkni – frá pöntun til pökkunar og afhendingar









