Keppni
Tuttugu matreiðslunemar kepptu um besta réttinn úr íslenskum saltfiski

Kristinn Björnsson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu, ásamt sigurvegaranum Giovanni Mercante frá Vicenza og öðrum þátttakendum í keppninni.
Íslenskur saltfiskur var í aðalhlutverki þegar tuttugu matreiðslunemar víðs vegar að frá Ítalíu komu saman í Rimini til að keppa um bestu útfærsluna á Baccalà Islandese, íslenskum saltfiski. Keppnin er samstarfsverkefni Bacalao de Islandia og kokkasamtakanna FIC (Federazione Italiana Cuochi) og miðar að því að kynna íslenskan saltfisk fyrir næstu kynslóð fagkokka á Ítalíu.
Áður en lokakeppnin fór fram hafði farið fram undankeppni í matreiðsluskólum um allt land, en aðeins sigurvegarar hvers skóla fengu sæti í úrslitunum í Rimini.
Heiðursgestur viðburðarins var sendiherra Íslands á Ítalíu, Guðmundur Árnason. Fyrir hann hafði dagurinn sérstaka merkingu. Hann ólst upp við saltfiskverkun í fjölskyldufyrirtæki á Eskifirði og þekkir því vel til þeirrar hefðar og handverks sem liggur að baki íslenskum saltfiski. Í stuttu ávarpi rifjaði hann upp að um hundrað ár eru liðin frá því Íslendingar hófu að selja saltfisk til Ítalíu. Fyrsti ræðismaður Íslands þar í landi var skipaður árið 1946, Hálfdán Bjarnason saltfiskkaupmaður í Genúu.
Ítalski landsliðskokkurinn Lorenzo Alessio hélt utan um framkvæmd keppninnar, en hann hefur um árabil verið ötull talsmaður íslensks saltfisks á Ítalíu. Hann hefur meðal annars heimsótt Ísland til að kynnast uppruna hráefnisins og hitt framleiðendur, reynsla sem hann miðlar áfram til nemenda sinna.
Sigurvegari keppninnar var Giovanni Mercante frá Vicenza sem heillaði dómnefnd með rétt sínum úr íslenskum saltfiski. Verðlaunin eru ferð til Íslands í september ásamt kennara hans þar sem þau munu heimsækja framleiðendur og kynnast íslenskri matarmenningu.
Að sögn Kristins Björnssonar, verkefnastjóra hjá Íslandsstofu, byggjast markaðir ekki aðeins á viðskiptasamningum heldur einnig á tengslum og þekkingu. Með samstarfi við matreiðslunema og fagfélög kokka sé verið að leggja grunn að framtíðarsókn á einum mikilvægasta saltfiskmarkaði Íslands.
Ítölsk matargerð hefur um áratuga skeið haft áhrif á veitingamenningu víða um heim. Þegar íslenskur saltfiskur á sér sess í þeirri hefð styrkir það einnig stöðu hráefnisins á alþjóðavettvangi og festir það í sessi í matarmenningu framtíðarinnar.
Myndir: islandsstofa.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði








